Fótbolti

Barcelona áfram en Real bíður

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Dani Alves fagnar marki sínu í kvöld.
Dani Alves fagnar marki sínu í kvöld. Vísir/Getty
Barceona er komið áfram í 16-liða úrslit spænsku bikarkeppninnar eftir öruggan 6-1 sigur á neðrideildarliðinu Villanovense í kvöld.

Fyrri leiknum lauk með markalausu jafntefli en leikmenn sem fá öllu jöfnu lítið að spila með aðalliði félagsins áttu góðan leik í kvöld.

Sandro Ramirez skoraði þrennu fyrir Barcelona í leiknum, Munir El Haddadi tvö og Dani Alves eitt. Juanfran skoraði mark Villanovense.

Real Madrid mætti Cadiz á útivelli og vann, 3-1. Þetta var fyrri viðureign liðanna í 32-liða úrslitum en þrátt fyrir sigurinn gæti Real verið dæmt úr leik, eins og Vísir hefur fjallað um.

Sjá einnig: Real Madrid hent úr bikarnum?

Denis Cheryshev skoraði fyrsta mark Real Madrid í kvöld en Isco hin tvö, áður en Kike Marquez minnkaði muninn undir lok leiksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×