Fótbolti

Líkir Manchester United leikmanni við Iniesta

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jesse Lingard.
Jesse Lingard. Vísir/Getty
Rene Meulensteen, fyrrum þjálfari hjá Manchester United fer fögrum orðum um Jesse Lingard sem hefur sprungið út hjá United-liðinu á þessu tímabili.

Jesse Lingard er 22 ára gamall og búinn að vera leikmaður Manchester United frá 2012. Nú fyrst er hann þó að fá tækifæri með aðalliðinu.

Lingard hefur fram að þessu verið lánaður til liða eins og Leicester City (2012-13), Birmingham City (2013-14), Brighton & Hove Albion (2014) og Derby County (2015). Nú þarf United-liðið hinsvegar á honum að halda.

„Ég sé Jesse fyrir mér sem ensku útgáfuna af Iniesta. Hann á langa leið fyrir höndum til að ná honum en hann er svoleiðis leikmaður," sagði Rene Meulensteen við heimasíðu Manchester United.  „Ég sagði alltaf við hann: Horfðu á eins mörg myndbönd með Andres Iniesta  og þú getur," sagði Meulensteen.

Jesse Lingard kemur til greina sem besti leikmaður nóvembermánaðar hjá Manchester United ásamt þeim Bastian Schweinsteiger og Chris Smalling.

Andrés Iniesta er 31 árs gamall og hefur spilað með Barcelona frá 2002 og spænska landsliðinu frá 2006. Iniesta hefur unnið alla stóru titlana á sínum feril, bæði með Barcelona og spænska landsliðinu.

Jesse Lingard hefur spilað fimm leiki í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili og skoraði sitt eina mark í 2-0 sigri á West Bromwich. Lingard hefur einnig spilað þrjá leiki í Meistaradeildinni.

„Fólk er að tala um að hann sé of lítill til að spila í ensku úrvalsdeildinni. Skoðið bara leikmenn eins og Andreas Iniesta, Xavi, Lionel Messi, David Silva og Juan Mata. Þeir eru allir litlir en það skiptir ekki öllu máli þegar þú ert fljótur að hugsa, fljótur á fótunum og með stórt hjarta. Jesse er þar með fullt hús," sagði Meulensteen.

Jesse Lingard.Vísir/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×