Fótbolti

Barcelona er félagið sem ég vildi alltaf spila fyrir

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Luis Suarez.
Luis Suarez. vísir/getty
Luis Suarez er svo hamingjusamur hjá Barcelona að hann myndi ekki einu sinni íhuga að fara þó svo hann fengi mörgum sinnum betri samning annars staðar.

Suarez kom til Barcelona frá Liverpool eftir HM 2014 og hefur farið á kostum í framlínunni með Neymar og Lionel Messi.

Hann er með samning við félagið fram til sumars árið 2019 og hann vonast til að vera enn lengur en það í Katalóníu.

„Ég lagði mikið á mig til þess að komast hingað. Þetta er félagið sem ég vildi alltaf spila fyrir,“ sagði Suarez.

„Ég myndi ekki fara héðan þó svo eitthvað félag myndi bjóðast til að þrefalda launin mín. Hér er ég og fjölskyldan hamingjusöm. Ég ætla að vera hérna í mörg ár til viðbótar."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×