Fótbolti

Real Madrid kláraði Getafe í fyrri hálfleik

Ronaldo í leiknum í dag.
Ronaldo í leiknum í dag. Vísir/Getty
Real Madrid vann öruggan 4-1 sigur á Getafe í spænsku úrvalsdeildinni í dag en leikmenn Real Madrid gerðu út um leikinn í fyrri hálfleik og leiddu 4-0 í hálfleik.

Karim Benzema sem hefur töluvert í umræðunni undanfarna vikur vegna fjárkúgunarmáls kom heimamönnum yfir á 4. mínútu á Santiago Bernebeau og bætti við öðru marki á 16. mínútu leiksins með skoti af stuttu færi.

Gareth Bale bætti við þriðja marki eftir undirbúning Cristiano Ronaldo á 38. mínútu og Ronaldo sjálfur var á skotskónum stuttu síðar eftir góðan undirbúning Toni Kroos.

Alexis minnkaði muninn fyrir Getafe á 70. mínútu en sigur Real Madrid var aldrei í hættu og lauk leiknum með 4-1 sigri Madrídinga sem minnkuðu forskot Barcelona niður í þrju stig en Barcelona á leik til góða gegn Valencia í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×