Fótbolti

Real Madrid dæmt úr leik

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Cheryshev skoraði fyrsta mark Real Madrid í leiknum gegn Cadiz.
Cheryshev skoraði fyrsta mark Real Madrid í leiknum gegn Cadiz. vísir/getty
Stórlið Real Madrid hefur verið dæmt úr leik í spænsku bikarkeppninni.

Ástæðan er sú að Real Madrid notaði ólöglegan leikmann, Denis Cheryshev, í fyrri leik liðsins gegn Cadiz í 32-liða úrslitum bikarkeppninnar á miðvikudaginn.

Cheryshev átti eftir að taka út leikbann í bikarkeppninni en Rússinn fékk þrjú gul spjöld þegar hann lék sem lánsmaður með Villarreal í fyrra.

Real Madrid vann leikinn örlagaríka gegn Cadiz, 3-1. Cheryshev skoraði fyrsta mark liðsins í leiknum.

Málið er hið neyðarlegasta fyrir Real Madrid sem hefur átt í miklum erfiðleikum á þessu ári eins og fjallað var um á Vísi fyrr í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×