Menning

Hlaut tvenn verðlaun í keppni

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Hér á vinnustofunni á Korpúlfsstöðum vinnur Ninný að listsköpun sinni.
Hér á vinnustofunni á Korpúlfsstöðum vinnur Ninný að listsköpun sinni. Fréttablaðið/GVA
„Ég hefði auðvitað verið alsæl með ein verðlaun, hvað þá fyrir bæði verkin mín. Það er heilmikill heiður,“ segir Jónína Magnúsdóttir, sem notar listamannsnafnið Ninný. Hún sendi tvö verk í alþjóðlegu samkeppnina American Art Award og hreppti 2. og 3. verðlaun í flokknum Impressionism Human. Þátttakendur voru frá 35 löndum og samkvæmt heimasíðu keppninnar er fólk frá 25 bestu galleríum Bandaríkjanna í dómnefnd.



Þessi mynd hlaut 2. verðlaun í flokknum Impressionism Human.
„Ég er fígúratívur málari og hef gaman af fjölbreytni og alls konar tækni. Nota mikið vatnsliti og segi alltaf að það sé það erfiðasta, því þar má engin mistök gera,“ segir Ninný sem á einu ári hefur tekið þátt í stórum samsýningum í Noregi, Mexíkó, Danmörku, Slóv­eníu og á Spáni. Síðasta einkasýning hennar var á æskuslóðum í Vestmannaeyjum á Goslokahátíð í sumar.





Þessi mynd hlaut 3. verðlaun í flokknum Impressionism Human. Hún er 90X2.30 að stærð.
Ninný kveðst ekki hafa tekið þátt í keppninni America Art Award áður. „En mér er oft boðið að taka þátt í ýmsu af því að ég er í stjórn Norræna vatnslitafélagsins og hef líka skapað viðburði á Íslandi þar sem erlendir og íslenskir listamenn hafa verið þátttakendur.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.