Matur

Apabollubrauð

Gómsæt uppskrift frá Eyþóri Rúnarssyni.
Gómsæt uppskrift frá Eyþóri Rúnarssyni.

Sjónvarpskokkurinn Eyþór Rúnarsson gefur gómsætar og auðveldar uppskriftir í þætti sínum Eldhúsið hans Eyþórs, á Stöð 2 fram að jólum.



Apabollubrauð

350 g + 2 msk. hveiti

50 g sykur

2 ½ tsk. ger

½ tsk. salt

60 g smjör, ósaltað

80 g mjólk

60 g vatn

2 egg

1 tsk. vanilludropar

Kanilsykur

200 g sykur

2 tsk. kanill

150 g smjör, bráðið, til að velta bollunum upp úr

Aðferð

Blandið saman í skál 300 g af hveiti, sykrinum, gerinu og saltinu.

Þeytið eggin saman og leggið til hliðar. Setjið smjör og mjólk saman í pott og hitið við vægan hita þar til smjörið er bráðnað. Bætið vatninu og vanilludropunum út í mjólkina og smjörið. Hellið þeirri blöndu síðan saman við þurrefnablönduna og hnoðið saman í hrærivél. Bætið eggjunum við smátt og smátt. Setjið 50 g af hveiti í viðbót ofan í skálina og hnoðið áfram. Deigið á að vera klístrað. Setjið deigið í smurða skál og látið lyfta sér í klst. Þegar deigið er búið að hefa sig hnoðið þá 2 msk. af hveiti saman við deigið og hnoðið í um 20 gramma bollur. Dýfið bollunum ofan í smjörið og veltið upp úr kanilsykrinum og setjið í smurt form. Hefið aftur í um 45 mín. eða þar til brauðið hefur tvöfaldast. Bakið við 170°C í 40 mín., látið brauðið kólna í 20-30 mín.

Banana- og pekanhnetukaramella

½ lítri rjómi

165 g púðursykur

¾ tsk. salt

1 msk. vanilluduft

2 stk. bananar

100 g pekanhnetur (ristaðar í ofni við 150 gráður í 25 mín.)

Aðferð

Setjið rjómann, púðursykurinn, saltið og vanilluduftið saman í pott og sjóðið í 35-40 mín. Stappið bananana saman og setjið út í pottinn og maukið allt saman með töfrasprota. Bætið svo ristuðu pekanhnetunum út í og hellið sósunni yfir brauðið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.