Fótbolti

Úkraína í góðri stöðu gegn Slóveníu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Yarmolenko fagnar marki sínu.
Yarmolenko fagnar marki sínu. vísir/getty
Úkraína vann 2-0 sigur á Slóveníu í fyrri leik liðanna um laust sæti á Evrópumótinu sem fram fer í Frakklandi næsta sumar. Mörkin komu í sitthvorum hálfleiknum.

Andriy Yarmolenko kom Úkraínu yfir þegar hann lék laglega á varnarmenn Slóvena og lagði boltann svo framhjá Samir Handanovic, markverði Inter, í markinu. Staðan 1-0 í hálfleik.

Yevhen Seleznyov tvöfaldaði forystuna á 54. mínútu eftir undirbúning Artem Fedetskyy og lokatölur 2-0 sigur Úkraínu í fyrri leiknum.

Liðin mætast svo í Slóveníu á þriðjudaginn. Sigurvegarinn úr viðureigninni fær sæti á Evrópumótinu í Frakklandi næsta sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×