Viðskipti innlent

Lárus Welding í héraðs­dómi: „Hér á nei­kvæð um­ræða gegn mér í fjöl­miðlum ekki að hafa nein á­hrif“

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Lárus Welding í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.
Lárus Welding í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. vísir/stefán

Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, gagnrýndi bæði fjölmiðla og embætti sérstaks saksóknara í ræðu sem hann hélt við upphaf aðalmeðferðar í STÍM-málinu svokallaða í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Í málinu er Lárus ákærður ásamt þeim Jóhannesi Baldurssyni, einum stjórnenda bankans, og Þorvaldi Lúðvík Sigurjónsyni, fyrrverandi forstjóri Saga Capital, fyrir lánveitingar Glitnis til hlutabréfakaupa í Glitni og FL Group. Mennirnir neita allir sök.

Forsaga málsins er sú að félagið Stím fékk tæplega 20 milljarða króna að láni frá Glitni til að kaupa hlutabréf í Glitni og FL Group í nóvember árið 2007. Seljandi bréfanna var Glitnir en um var að ræða rúmlega 4 prósenta hlut í hvoru tilfelli. Veðin fyrir láni Stíms voru í hlutabréfunum í Glitni og FL Group.

Enn tíu mál til rannsóknar hjá sérstökum

Lárus er ákærður fyrir umboðssvik með því að hafa farið út fyrir lánaheimildir sínar og stefnt fjármunum Glitnis í hættu. Forstjórinn fyrrverandi neitar sök í málinu.

Í ræðu sinni fór Lárus yfir það að þótt hann hafi aðeins verið forstjóri Glitnis í 17 mánuði en starfið hafi þó fylgt honum í átta ár vegna þeirra þriggja sakamála sem sérstakur saksóknari hefur höfðað gegn honum. Einu máli er lokið, Vafningsmálinu svokallaða, þar sem Lárus var sýknaður af ákæru í Hæstarétti.

Fram kom í máli Lárusar að enn séu tíu mál til rannsóknar hjá embættinu þar sem hann hefur stöðu sakbornings.

„Það eru vissulega til verri hlutskipti í lífinu en að vera ranglega ákærður en því fylgir engu að síður mikið álag, bæði fyrir mig sem og fjölskyldu mína. Þá hefur verið nær ómögulegt fyrir mig að starfa á þeim vettvangi sem menntun mín og starfsreynsla nær til en endanleg úrlausn þessara mála næst varla innan áratugarins,“ sagði Lárus meðal annars.

Sagði sérstakan saksóknara hafa notið stuðnings fjölmiðla

Þá gerði hann umfjöllun fjölmiðla um hrunmálin að umtalsefni sem og umræðuna í samfélaginu.

„Allt frá hausti 2008 hefur umræðan í samfélaginu verið óvægin. [...] Enginn áhugi hefur verið á okkar hlið í fjölmiðlum. [...] Sérstakur saksóknari hefur hins vegar notið stuðnings fjölmiðla. Ég hef til dæmis tvisvar heyrt af ákæru á hendur mér fyrst í gegnum fjölmiðla,“ sagði Lárus.

Hann beindi svo orðum sínum að dómnum:

„Sjálfur hef ég kosið að ræða þessi mál aldrei við fjölmiðla því ég lít svo á að vettvangurinn sé hér. Hér á rétt á ykkar hlutlausu áheyrni. Hér á neikvæð umræða gegn mér í fjölmiðlum ekki að hafa nein áhrif. Ég treysti á hlutleysi dómsins við úrlausn þessa máls.“

Kvaðst aldrei hafa haft neinn persónulegan ávinning

Lárus sagði að sá möguleiki væri fyrir hendi að dómstóllinn gæfi sér að hann hefði haft rangan ásetning í störfum sínum fyrir Glitni en það væri fjarri sanni.

„Allt sem ég gerði gerði ég í þágu bankans. Ég fór eftir ferlum bankans og lánareglum og gerði það sem best fyrir afkomu bankans. Ég hafði aldrei neinn persónulegan ávinning af neinni ákvörðun sem ég tók fyrir bankann og ég átti ekki hlutabréf í bankanum.“


Tengdar fréttir

Þrír ákærðir í Stím málinu

Embætti sérstaks saksóknara hefur gefið út ákæru á hendur Þorvaldi Lúðvík Sigurjónssyni, Jóhannesi Baldurssyni og Lárusi Welding.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×