Vitni í Stím-málinu neitaði alfarið að tjá sig fyrir dómi Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 18. nóvember 2015 09:55 Elmar Svavarsson er hér fyrir miðri mynd. vísir/gva
Elmar Svavarsson, sem var verðbréfamiðlari í Glitni fyrir hrun, var kallaður til sem vitni í Stím-málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Í málinu eru þeir Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, Jóhannes Baldursson, fyrrverandi framkvæmdastjóri markaðsviðskipta bankans og Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, fyrrverandi forstjóri Sögu Capital, ákærðir fyrir umboðssvik og hlutdeild í umboðssvikum vegna lánveitinga til félagsins Stím. Skemmst er frá því að segja að Elmar neitaði alfarið að tjá sig fyrir dómi en þar sem hann er með réttarstöðu sakbornings í öðrum málum sem sérstakur saksóknari hefur til rannsóknar átti vitnið rétt á því að svara ekki spurningum þar sem svarið kynni að varpa á hann sök. Ráðlagt að svara engum spurningumÞegar Elmar settist í vitnastúkuna sagði hann að lögfræðingur sinn hefði ráðlagt sér að svara engum spurningum þar sem Stím-málið væri beintengt fleiri málum, þar á meðal meintri markaðsmisnotkun í Glitni á nokkuð löngu tímabili fyrir hrun. Símon Sigvaldason, dómsformaður, sagði þó að það yrði að „þreifa á þessu“ og leyfði saksóknara að spyrja Elmar. Hann lagði þó ríka áherslu á að það væru fyrst og fremst hagsmunir vitnisins sem væru undir vegna þeirrar stöðu sem hann hefði hvað varðar rannsókn annarra mála. Saksóknari hóf þá að spyrja Elmar og bað hann að gera grein fyrir upphaflegri aðkomu sinni að málum FS37 og Stím. Elmar neitaði að svara þeirri spurningu og sagðist einfaldlega ekkert ætla að tjá sig. Sá ekki tilgang með því að spyrja vitnið áframEngu að síður hélt saksóknari áfram og spilaði meðal annars símtal á milli Elmars og Jakobs Valgeirs Flosasonar, sem var einn af eigendum Stím. Elmar var svo spurður hvort hann vildi tjá sig um þau samskipti en neitaði því og var augljóslega ekki skemmt. Hann beindi orðum sínum til dómsformannsins:„Hann [saksóknarinn] er ekki að fara sérstaklega vel með hiemildina sem þú ert að veita honum.“ Sagði Símon þá að hann sæi ekki tilgang með því að spyrja vitnið áfram og lauk þar með skýrslutökunni. Þess má geta að Elmar var einn af ákærðu í BK-málinu svokallaða og hlaut 5 ára fangelsisdóm í héraði vegna aðkomu sinnar að því. Þeim dómi var áfrýjað til Hæstaréttar sem tók málið fyrir fyrr í mánuðinum en enn er beðið niðurstöðu réttarins. Jóhannes Baldursson, einn sakborninga í Stím-málinu, var einnig dæmdur í 5 ára fangelsi í héraði vegna BK-málsins.
Stím málið Tengdar fréttir Stím-málið: Einn sakborninga neitaði að gefa skýrslu fyrir dómi Jóhannes Baldursson var varla meira en mínútu í vitnastúkunni í dag. 16. nóvember 2015 21:59 „Ef ég væri Lalli liði mér djöfulli illa með mína stærstu hluthafa í svona skítamálum“ Fyrrverandi forstjóri Sögu Capital skildi það sem svo að Hannes Smárason hafi verið búinn að panta hlutabréf í FL Group og Glitni en síðan "gengið úr skaftinu vegna fjárhagsörðugleika.“ Þess vegna hafi verið stofnað til Stím-viðskiptanna. 17. nóvember 2015 12:00 Stím-málið: Forstjórinn vissi ekki að 20 milljarða króna lán var utan heimilda Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, sagði fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur telja að hugmyndin að STÍM-viðskiptunum hafi kviknað hjá markaðsviðskiptum bankans þar sem þar hafi verið viðskiptavinir sem vildu fjárfesta í bankanum. 16. nóvember 2015 20:52 Sagði Stím-kaupin vera óverjandi Magnús Pálmi Örnólfsson, fyrrverandi starfsmaður Glitnis, segist hafa haft frumkvæði að því að hann nýtur friðhelgi í Stím-málinu hvað varðar saksókn. Þetta kom fram í vitnaleiðslum yfir honum í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. 18. nóvember 2015 07:00 „Þú verður bara að segja að ég hafi sagt þér að gera þetta“ Magnús Pálmi Örnólfsson, fyrrverandi starfsmaður Glitnis, er lykilvitni í Stím-málinu en hann breytti framburði sínum í yfirheyrslum hjá sérstökum saksóknara og veitti embættinu upplýsingar gegn því að hann nyti friðhelgi frá saksókn í málinu. 17. nóvember 2015 14:34 Mest lesið Einn stærsti vinnustaður Akraness gjaldþrota Viðskipti innlent Mikið áfall fyrir íslenskan sjávarútveg Viðskipti innlent Ósáttur með sætin og fær milljón endurgreidda Neytendur Syndis ræður reyndan tölvuþrjót Viðskipti innlent Gjaldþrot Jötunn véla upp á 1,7 milljarða Viðskipti innlent Gera margvíslegar athugasemdir við starfshætti Kviku Viðskipti innlent Reitir hrista upp í skipuritinu Viðskipti innlent Matvöruverslun rís á nýjum reit við Keflavíkurflugvöll Viðskipti innlent Stærsti Hiab krani í heimi á sumarsýningu Veltis Samstarf Ýmsar ástæður fyrir lokun en launin stóra vandamálið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Mikið áfall fyrir íslenskan sjávarútveg Einn stærsti vinnustaður Akraness gjaldþrota Syndis ræður reyndan tölvuþrjót Gera margvíslegar athugasemdir við starfshætti Kviku Gjaldþrot Jötunn véla upp á 1,7 milljarða Reitir hrista upp í skipuritinu Matvöruverslun rís á nýjum reit við Keflavíkurflugvöll Gefa út afkomuspá eftir allt saman 96 sagt upp í hópuppsögnum í júní Tekur við fjármálunum hjá Securitas Selja fyrsta bjórinn ekki fyrr en í ágúst Karen Ýr ráðin gæðastjóri Biðin eftir vaxtalækkun gæti lengst enn frekar Minna nú á skoðun ökutækja á Ísland.is Alvotech reiknar með tíföldum tekjum Útflutningsverðmæti eldislaxins meiri en loðnunnar Opna baðstað í Kerlingarfjöllum um helgina Svekkjandi uppgjör og aðstoðarforstjórinn látinn róa Arion banki greiði Seðlabankanum 585 milljónir Rannveig hættir í Seðlabankanum Íslensk hugbúnaðarlausn greinir kolefnisspor innkaupa fyrirtækja Flýta ekki vaxtaákvörðun þrátt fyrir áköll Flestar íbúðir seljist undir eða á auglýstu verði Ýmir Örn fer frá N1 Verðbólga nú 5,8 prósent Icelandair kaupir Airbus flughermi Í maí voru 5800 atvinnulausir Snúa vörn í sókn og kynna eldfjallaleið fyrir ferðamenn Andri Þór Viðskiptafræðingur ársins 2024 Hafa ekki nokkrar áhyggjur af fækkun ferða Sjá meira
Stím-málið: Einn sakborninga neitaði að gefa skýrslu fyrir dómi Jóhannes Baldursson var varla meira en mínútu í vitnastúkunni í dag. 16. nóvember 2015 21:59
„Ef ég væri Lalli liði mér djöfulli illa með mína stærstu hluthafa í svona skítamálum“ Fyrrverandi forstjóri Sögu Capital skildi það sem svo að Hannes Smárason hafi verið búinn að panta hlutabréf í FL Group og Glitni en síðan "gengið úr skaftinu vegna fjárhagsörðugleika.“ Þess vegna hafi verið stofnað til Stím-viðskiptanna. 17. nóvember 2015 12:00
Stím-málið: Forstjórinn vissi ekki að 20 milljarða króna lán var utan heimilda Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, sagði fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur telja að hugmyndin að STÍM-viðskiptunum hafi kviknað hjá markaðsviðskiptum bankans þar sem þar hafi verið viðskiptavinir sem vildu fjárfesta í bankanum. 16. nóvember 2015 20:52
Sagði Stím-kaupin vera óverjandi Magnús Pálmi Örnólfsson, fyrrverandi starfsmaður Glitnis, segist hafa haft frumkvæði að því að hann nýtur friðhelgi í Stím-málinu hvað varðar saksókn. Þetta kom fram í vitnaleiðslum yfir honum í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. 18. nóvember 2015 07:00
„Þú verður bara að segja að ég hafi sagt þér að gera þetta“ Magnús Pálmi Örnólfsson, fyrrverandi starfsmaður Glitnis, er lykilvitni í Stím-málinu en hann breytti framburði sínum í yfirheyrslum hjá sérstökum saksóknara og veitti embættinu upplýsingar gegn því að hann nyti friðhelgi frá saksókn í málinu. 17. nóvember 2015 14:34