Menning

Sækir myndefnið í svörð og kletta

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
„Ég er svona að koma út úr skápnum sem málari,“ segir Elín sem hefur selt vel á fyrstu sýningunni sinni.
„Ég er svona að koma út úr skápnum sem málari,“ segir Elín sem hefur selt vel á fyrstu sýningunni sinni. Mynd/Úr einkasafni
Ég geng mikið úti í náttúrunni og sæki myndefnið í svörð og kletta en tjái um leið miklar tilfinningar,“ segir Elín Rafnsdóttir listmálari um olíumálverkin sín sem hún hefur opnað sýningu á í fyrsta skipti á ævinni.

Elín lærði myndlist í Myndlista- og handíðaskólanum, akademíunni í Kaupmannahöfn, í San Francisco og lauk master í New York.

„Ég lagði stund á höggmyndalist en eftir að hafa eignast barn sem stríddi við erfið veikindi framan af ævinni einbeitti ég mér að umönnun þess, uppeldi og heimilinu. Ég hef líka kennt myndlist í Fjölbraut Breiðholti í 24 ár og margir nemendur sem nú eru orðnir myndlistarmenn þekkja mig þaðan.“   

Fyrir rúmum áratug ákvað Elín að snúa sér að málverkinu.

„Í skólanum lagði Einar Hákonarson listmálari að mér að fara í málun á sínum tíma en ég ákvað tíu ára gömul að verða skúlptúristi og hélt því til streitu. Mér gekk líka vel á þeim vettvangi og var til dæmis boðið að sýna í New York en það var slítandi að vera með vinnustofu úti í bæ ásamt því að sinna veiku barni og leggja sál mína í kennsluna. Ég ákvað því að skipta um miðil og snúa mér að málverkinu sem ég gæti gripið í í bílskúrnum heima.“

Eftir skilnað fyrir nokkrum árum varð hlé á listsköpuninni í skúrnum að sögn Elínar en nú hefur hún fundið gleðina þar á ný.

„Ég elska að fara út í bílskúr að mála og fer í algert hugleiðsluástand,“ segir hún. Kveðst hún hafa farið til markþjálfa og gert lista yfir það sem hún vildi hrinda í framkvæmd.

„Nú hef ég staðið við öll markmiðin og þessi sýning er eitt af þeim. Ég er svona að koma út úr skápnum sem málari.“

Elín kveðst hafa selt vel á opnunardaginn. Sýning hennar hjá Íslenskri grafík stendur til 29. nóvember og er opin fimmtudaga til sunnudaga frá klukkan 14 til 18. Gengið er inn hafnarmegin.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.