Fótbolti

Barcelona samdi við meiddan Rafinha

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Rafinha er hann sleit liðbönd í hné í Meistaradeildinni um daginn.
Rafinha er hann sleit liðbönd í hné í Meistaradeildinni um daginn. vísir/getty
Barcelona tilkynnti í dag að félagið væri búið að ná samkomulagi um nýjan fimm ára samning við Brasilíumanninn Rafinha.

Nýi samningurinn mun gilda til lok júní árið 2020. Það mun kosta 75 milljónir evra að losa hann undan samningi.

Hlutverk Rafinha hefur farið stækkandi síðustu misseri og hann var valinn í brasilíska landsliðið í fyrsta skipti.

Hann meiddist aftur á móti alvarlega á dögunum og spilar ekki næstu mánuði. Þrátt fyrir það hefur félagið tröllatrú á honum og gerði því við hann nýjan samning í meiðslunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×