Fótbolti

Manchester City áfram í 16 liða úrslitin | Sjáið mörkin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Raheem Sterling fagnar marki í kvöld.
Raheem Sterling fagnar marki í kvöld. Vísir/EPA
Manchester City tryggði sér sæti í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar eftir 3-1 útisigur á Sevilla í kvöld.

City-liðið hefur oft verið í vandræðum í Meistaradeildinni en nú er það hinsvegar fyrsta liðið ásamt Real Madrid til þess að tryggja sig inn í sextán liða úrslitin.

Manchester City hefur sex stiga forskot á Sevilla og verður alltaf ofar á betri árangri í innbyrðisleikjum. Jafntefli Juventus og Borussia Mönchengladbach sá til þess að þýska liðið getur heldur ekki náð City.

Manchester City skoraði öll þrjú mörkin sín í leiknum á fyrstu 36 mínútum leiksins.

Raheem Sterling kom Manchester City yfir strax á áttundu mínútu leiksins þegar hann fékk frábæra sendingu inn í teiginn frá Fernandinho. Sterling varð um leið yngsti markaskorari City-liðsins í Meistaradeildinni eða aðeins 20 ára og 330 daga.

Það liðu bara þrjár mínútur þar til að Fernandinho var búinn að skora sjálfur en Raheem Sterling spilaði þá Wilfried Bony fríann og Fernandinho fylgdi á eftir skoti Bony sem var varið.

Manchester City hafði mikla yfirburði á upphafsmínútunum leiksins og Jesús Navas átti skot sem Rica varði í stöngina og út á 13. mínútu.

Það stefndi því allt í stórsigur gestanna en Sevilla menn vöknuðu af værum blundi og fóru að ógna meira.

Benoit Trémoulinas minnkaði muninn í 2-1 á 25. mínútu með skalla af stuttu færi eftir laglega sókn og frábæran undirbúning hjá Coke.

Heimamenn fengu frábært færi til að jafna metin áður en Wilfried Bony komo City-liðinu í 3-1 á 36. mínútu eftir flottan undirbúning frá Jesús Navas, sem spilaði í tíu ár með Sevilla.

Raheem Sterling var í feiknaformi í kvöld og lagði upp færi fyrir bæði Fernandinho og Wilfried Bony á upphafsmínútum seinni hálfleiksins.

Manchester City fékk fleiri færi til þess að gulltryggja sigurinn sem var aldrei í mikilli hættu í seinni hálfleiknum.

Raheem Sterling kemur City í 1-0 Fernandinho skorar fyrir Manchester City Sevilla minnkar muninn í 2-1 á móti Man. City Wilfried Bony skorar þriðja mark City



Fleiri fréttir

Sjá meira


×