Fótbolti

Willian með frábært sigurmark fyrir Chelsea | Sjáið mörkin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Willian fagnar sigurmarki sínu.
Willian fagnar sigurmarki sínu. vísir/getty
Brasilíumaðurinn Willian var maðurinn á bak við mikilvægan 2-1 sigur Chelsea á úkraínska liðinu Dynamo Kiev í 4. umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar í kvöld.

Willian lagði upp fyrra markið og skoraði síðan það seinna með frábæru skoti beint úr aukaspyrnu.

Aleksandar Dragovic, leikmaður Dynamo Kiev, náði því að skora í bæði mörkin í leiknum en hann kom Chelsea yfir með því að setja boltann í eigið mark en náði svo að bæta fyrir það.

Sigurinn kemur lærisveinum Jose Mourinho upp í sjö stig og í annað sæti riðilsins en liðið hefur nú tveggja stiga forskot á Dynamo Kiev sem er í þriðja sætinu.

Fyrri hálfleikurinn á Stamford Bridge bauð ekki upp á mikil tilþrif og það var sjálfsmark sem skildi á milli liðanna í hálfleik.

Chelsea hafði heppnina með sér á 34. mínútu leiksins þegar Aleksandar Dragovic skallaði boltann í eigið mark eftir fyrirgjöf frá Willian.

Aleksandar Dragovic bætti fyrir mistökin þegar hann jafnaði metin á 78. mínútu en markið kom eftir hornspyrnu.

Það liðu bara fimm mínútur þar til að Willian kom Chelsea aftur yfir og það frábæra mark beint úr aukaspyrnu reyndist síðan vera sigurmarkið í leiknum.

Heppnin með Chelsea í fyrsta markinu Nú skoraði Dragovic í rétt mark Sigurmark Willian



Fleiri fréttir

Sjá meira


×