Fótbolti

Bæjarar fóru illa með menn Wenger í kvöld | Sjáið mörkin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
David Alaba fagnar frábæru markim sínu.
David Alaba fagnar frábæru markim sínu. Vísir/Getty
Bayern München fór langt með að tryggja sér sæti í sextán liða úrslitunum Meistaradeildarinnar um leið og að koma Arsenal í enn verri stöðu þegar þýsku meistararnir unnu 5-1 sigur á lærisveinum Arsene Wenger í München í kvöld.

Bayern München var með mikla yfirburði í leiknum og sýndu það og sönnuðu að tapið á móti Arsenal í síðasta leik var slys.

Bayern München hefur nú níu stig af tólf mögulegum og er með fimm stiga forskot á liðið í þriðja sæti þegar aðeins sex stig eru eftir í pottinum.

Það bætti ekki kvöldið fyrir Arsenal að Olympiakos vann 2-1 sigur á Dinamo Zagreb á sama tíma og Arsenal því sex stigum frá sextán liða úrslitunum þegar aðeins tveir leikur eru eftir.

Það var ljóst strax frá byrjun í hvað stefndi í þessum leik á Allianz Arene en Bæjarar voru í miklu stuði og spiluðu frábæran fótbolta.

Robert Lewandowski var búinn að koma Bayern München í 1-0 strax á 10. mínútu leiksins þegar hann skallaði inn sendingu frá Thiago. Arsenal-menn heimtuðu rangstöðu en endursýningarnar sönnuðu annað.

Arsenal kom boltanum í mark Bæjara aðeins tveimur mínútum eftir að Bayern komst yfir en mark Mesut Özil var dæmt af þar sem hann virtist nota höndina til þess að skora. Aðstoðardómararnir létu það ekki fara framhjá sér og markið var dæmt af.

Thomas Müller kom Bayern í 2-0 á 29. mínútu með hnitmiðuðu skoti eftir að Kingsley Coman lagði fyrirgjöf Philipp Lahm fyrir Müller.

David Alaba skoraði þriðja markið með frábæru langskoti rétt fyrir hálfleik og staðan var því 3-0 í hálfleik.

Arjen Robben kom inná sem varamaður á 54. mínútu og aðeins mínútu síðar var hann búinn að koma Bayern-liðinu í 4-0 eftir sendingu frá David Alaba.

Olivier Giroud minnkaði muninn í 4-1 á 69. mínútu en það var langt frá því að vera nóg.

Thomas Müller skoraði sitt annað marki í leiknum og fimmta mark Bæjara í leiknum á 89. mínútu og stórsigur Bæjarar var í höfn.

Lewandowski kemur Bayern yfir á móti Arsenal Mesut Özil skorar en markið dæmt af Müller eykur forkost Bæjara í 2-0 Frábært mark hjá David Alaba Robben varla kominn inná þegar hann skoraði Giroud minnkar muninn



Fleiri fréttir

Sjá meira


×