Fótbolti

Alfreð og félagar í flottum málum | Úrslit og markaskorarar í Meistaradeildinni í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Felipe Pardo fagnar hér sigurmarki sínu í kvöld.
Felipe Pardo fagnar hér sigurmarki sínu í kvöld. Vísir/EPA
Alfreð Finnbogason og félagar í gríska liðinu Olympiakos eru í mjög góðum málum í sínum riðli í Meistaradeildinni í fótbolta eftir endurkomusigur í kvöld.

Rússneska liðið Zenit St. Petersburg tryggði sér sæti í sextán liða úrslitunum með því að vinna 2-0 útisigur á Lyon en Valencia mistókst að gulltryggja sitt sæti í sama riðli þegar liðið tapaði á móti belgíska liðinu Gent.

Alfreð Finnbogason kom inná sem varamaður á 81. mínútu í 2-1 heimasigri Olympiakos á móti Dinamo Zagreb. Staðan var 1-1 þegar Alfreð kom við sögu en Dinamo Zagreb komst í 1-0 og var yfir í 44 mínútur.

Felipe Pardo var hetja Olympiakos í leiknum en þessi 25 ára gamli Kólumbíumaður skoraði bæði mörk liðsins þar á meðal sigurmarkið á lokamínútunni.

Bayern München rúllaði yfir Arsenal, 5-1, á sama tíma en þau úrslit komu sér mjög vel fyrir Alfreð og félaga.

Olympiakos er þar með níu stig eins og topplið Bayern München og næstu lið, Dinamo Zagreb og Arsenal, eru bæði sex stigum á eftir þegar aðeins sex stig eru eftir í pottinum.

Chelsea komst upp í annað sætið í sínum riðli eftir að Willian tryggði liðinu 2-1 sigur á Dynamo Kiev með frábæru marki beint úr aukaspyrnu. Chelsea er með tveimur stigum minna en topplið Porto en hefur tveggja stiga forskot á Dynamo Kiev.

Barcelona er svo gott sem komið áfram eftir 3-0 heimasigur á BATE Borisov en liðið hefur fimm stiga forskot á Roma og sex stiga forskot á Bayer Leverkusen.

Roma vann 3-2 sigur á Bayer Leverkusen í kvöld í frábærum leik en Miralem Pjanic skoraði sigurmark Roma eftir að þýska liðið hafði unnið upp tveggja marka forskot.

Þetta var annar frábæri leikur liðanna í röð en liðin gerðu 4-4 jafntefli þegar þau mættust í síðustu umferð í Þýskalandi.  



Úrslit og markaskorarar í Meistaradeildinni í kvöld:

E-riðill:

Barcelona - BATE Borisov    3-0

1-0 Neymar, víti (30.) 2-0  Luis Suárez (60.), 3-0 Neymar (82.)

Roma - Bayer Leverkusen    3-2

1-0 Mohamed Salah (2.), 2-0 Edin Dzeko (29.), 2-1 Admir Mehmedi (46.), 2-2 Javier Hernández (51.), 3-2 Miralem Pjanic, víti (80.).

F-riðill

Bayern München - Arsenal    5-1

1-0 Robert Lewandowski (10.), 2-0 Thomas Müller (29.), 3-0 David Alaba (44.), 4-0 Arjen Robben (55.), 4-1 Olivier Giroud (69.), 5-1 Thomas Müller (89.)

Olympiakos - Dinamo Zagreb    2-1

0-1 Armin Hodzic (21.), 1-1 Felipe Pardo (65.), 2-1 Felipe Pardo (90.). Alfreð Finnbogason kom inná sem varamaður á 81. mínútu og Olympiakos skoraði sigurmarkið níu mínútum síðar.

G-riðill

Chelsea - Dynamo Kiev    2-1

1-0 Sjálfsmark Aleksandar Dragovic (34.), 1-1 Aleksandar Dragovic (78.), 2-1 Willian (83.)

Maccabi Tel Aviv - Porto    1-3

0-1 Cristian Tello (19.), 0-2 André André (50.), 0-3 Miguel Layún (72.), 1-3 Eran Zahavi (75.)

H-riðill

Gent - Valencia    1-0

1-0 Sven Kums (49.)

Lyon - Zenit St. Petersburg    0-2

0-1 Artyom Dzyuba (25.), 0-2 Artyom Dzyuba (57.)



Stig liðanna í E-riðlinum:

Barcelona 10, Roma 5, Leverkusen 4, Bate 3.

Stig liðanna í F-riðlinum:

Bayern 9, Olympiakos 9, Zagreb 3, Arsenal 3

Stig liðanna í G-riðlinum:

Porto 10, Chelsea 7, Kiev 5, Maccabi 0

Stig liðanna í H-riðlinum:

Zenit 12, Valencia 6, Gent 4, Lyon 1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×