Markvörður meistaranna samdi við Víking Tómas Þór Þórðarson skrifar 6. nóvember 2015 12:00 Róbert Örn Óskarsson í nýja búningnum. vísir/vilhelm
Róbert Örn Óskarsson, markvörður Íslandsmeistara FH, er genginn í raðir Víkings. Hann skrifaði undir þriggja ára samning við Fossvogsfélagið í hádeginu. Róbert Örn hefur spilað með uppeldisfélagi sínu FH síðan 2012 og verið aðalmarkvörður þess síðan 2013. Hann vann silfrið með liðinu í Pepsi-deildinni í fyrra og varð Íslandsmeistari í ár. Þessi 28 ára gamli markvörður hefur legið undir feld síðustu daga eftir að FH-ingar sömdu við færeyska landsliðsmarkvörðinn Gunnar Nielsen sem kom í Hafnarfjörðinn frá Stjörnunni. Eins og Vísir greindi frá voru, auk Víkings, Fylkir, Fjölnir og ÍBV á eftir honum. Þá vildi FH einnig semja aftur við Róbert sem rann út á samningi í lok október. Róbert hitti FH-inga á fundi í Kaplakrika í gær en tók þá ákvörðun að ganga í raðir Víkings. Hann hefur áður verið á mála hjá Víkingi, en sumarið 2011 gekk hann í raðir Fossvogsfélagsins áður en hann var svo lánaður til ÍR. Víkingar munu nú örugglega losa sig við danska markvörðinn Thomas Nielsen sem varði mark liðsins í sumar. Hann er farinn til síns heima, en sagði í viðtali við Vísi í síðustu viku að hann langaði að koma aftur. Víkingar höfnuðu í níunda sæti Pepsi-deildarinnar á síðustu leiktíð eftir að gera stórvel sem nýliðar í fyrra og komast þá í Evrópukeppni í fyrsta sinn í 23 ár.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Á meðan að pabbi er formaður mun ég ekki skipta um lið“ Körfubolti Næstu bikarmeistarar stórgræða á árangri Víkings Fótbolti Heimir leitar sátta: Vill bjór og spjall með Duff og Bradley Fótbolti Borga 50 milljónir fyrir 17 ára pjakk sem fær sjö ára samning Enski boltinn Ný átta sekúndna regla innleidd hér á landi Íslenski boltinn Þungarokkarar skemmdu meistarafána Bulls Körfubolti Rashford og 32 ára nýliði í fyrsta landsliðshópi Tuchels Enski boltinn Gjammandi áhorfandinn biður McIlroy afsökunar Golf „Kominn tími á konu í Formúlu 1“ Formúla 1 Dorgu bað dómarann um að gefa United ekki víti Fótbolti Fleiri fréttir Ný átta sekúndna regla innleidd hér á landi Markvörður FH fer heim til Keflavíkur Lengsta undirbúningstímabilið að klárast Alex Freyr skrópaði á æfingu á Spáni Helena Ósk tryggði Valskonum sæti í undanúrslitunum Þór/KA konur áfram í undanúrslit eftir sigur í Árbænum Tveggja leikja bann fyrir glórulausa tæklingu Fyrirliði Vestra veðjaði á leiki í Bestu deildinni 55 ára Rúnar smurði hann í skeytin með bæði hægri og vinstri Valur fær manninn sem var efstur á óskalistanum Kveður Selfyssinga óvænt: „Það er synd að kveðja á þennan hátt“ Baðst afsökunar á tæklingunni í Garðabænum Skrautlegt mark, glæsimark og allt brjálað í sigri KR „Ljótasta tækling ársins komin í íslenska boltanum“ FH sækir liðsstyrk út fyrir landsteinana Trúir á Óla Kristjáns og Jesú Krist Í skýjunum með að hreppa Þórdísi Hrönn Níu mörk þegar KR vann ÍBV QPR vildi Þorra en Fram sagði nei Fylkismenn komust áfram á kostnað Íslandsmeistara Blika Valskonur með fullt hús og markatöluna 15-1 Thomsen mættur aftur í íslenska boltann Pedersen með tvö og Valsmenn í undanúrslit Auðun tekur við Þrótti Vogum „Fjölskyldan spurði hvort ég gæti ekki fundið hlýrra land“ Sveinn Margeir mögulega ekkert með Víkingum í sumar Víðir með Vestmannaeyingum í sumar Daði Berg frá Víkingi til Vestra Víkingar skipta um gír Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja Sjá meira