Fótbolti

Suárez og Neymar sáu um Villareal | Sjáðu frábæra takta hjá Neymar í þriðja markinu

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Luis Suárez og Neymar halda áfram að blómstra í fjarveru Lionel Messi en framherjaparið skoraði öll þrjú mörk Barcelona í öruggum 3-0 sigri á Villareal á heimavelli í dag.

Það voru spurningar á lofti þegar Messi meiddist á dögunum hvernig leikmönnum Barcelona myndi ganga án besta leikmanns síns en Suárez og Neymar hafa heldur betur svarað kallinu.

Allt frá því að Messi fór meiddur af velli gegn Las Palmas hafa bæði Neymar og Suárez skorað tíu mörk í öllum keppnum og Barcelona hefur unnið níu af tíu leikjum sínum.

Neymar kom Barcelona yfir á 60. mínútu eftir sendingu frá Sergio Busquets en tíu mínútum síðar bætti Suárez við marki af vítapunktinum.

Neymar gerði síðan út um leikinn með glæsilegu marki fimm mínútum fyrir leikslok eftir sendingu Luis Suárez en með sigrinum skaust Barcelona tímabundið upp fyrir Real Madrid í spænsku deildinni.

Neymar kemur Barcelona yfir: Suárez bætir við marki:



Fleiri fréttir

Sjá meira


×