Fótbolti

Suárez og Neymar sáu um Getafe

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Neymar er markahæstur á Spáni.
Neymar er markahæstur á Spáni. vísir/getty
Luís Suárez og Neymar voru á skotskónum þegar Barcelona jafnaði Real Madrid að stigum á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar með 0-2 sigri á Getafe á útivelli í kvöld.

Lionel Messi er enn frá vegna meiðsla en Börsungum hefur gengið ágætlega í fjarveru hans en þetta var þriðji sigur liðsins í deildinni í röð.

Sergi Roberto lagði upp bæði mörk Barcelona í kvöld, fyrir Suárez á 37. mínútu og Neymar á 58. mínútu. Sá síðarnefndi er markahæsti leikmaður deildarinnar með níu mörk.

Börsungar hafa átt í vandræðum með varnarleikinn á tímabilinu en þeir héldu hreinu í kvöld, í fyrsta sinn í deildarleik síðan í 1-0 sigrinum á Málaga í 2. umferðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×