Fótbolti

Lewandowski: Þetta er síðasti séns fyrir Arsenal

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Thomas Müller og Robert Lewandowski fagna marki.
Thomas Müller og Robert Lewandowski fagna marki. vísir/getty
Robert Lewandowski, framherji Þýskalandsmeistara Bayern München, segir alla pressuna vera á Arsenal fyrir leik liðanna í þriðju leikviku riðlakeppni Meistaradeildarinnar í kvöld.

Arsenal byrjar Meistaradeildarinar hræðilega, en liðið er búið að tapa fyrstu tveimur leikjum sínum. Það tapaði, 2-1, fyrir Dinamo Zagreb í Króatíu og 3-2 fyrir Olympiacos á heimavelli þar sem Alfreð Finnbogason skoraði sigurmarkið.

Stigalausir Arsenal-menn fá nú það erfiða verkefni að spila tvisvar í röð við Bayern München, en fái liðið ekki nokkur stig úr þeim viðureignum er hæpið að Skytturnar komst upp úr riðlinum.

„Ég vona að við náum í þrjú stig. Með þremur sigrum værum við komnir hálfa leið í útsláttarkeppnina. Arsenal væri í vandræðum en það kemur okkur ekkert við. Við erum Bayern München og hugsum bara um sjálfa okkur,“ segir Lewandowski í viðtali við Goal.com.

„Við vitum að þetta verður ekki auðveldur leikur. Fyrir Arsenal, á heimavelli, er þetta næstum því síðasti séns til að komast í næstu umferð. Arsenal þarf heldur betur að gefa í því annars er þetta búið hjá því,“ segir Robert Lewandowski.

Leikur Arsenal og Bayern München verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD klukkan 18.30, en Meistaradeildarkvöld hefst klukkan 18.15 og Stöð 2 Sport HD og heldur áfram á meðan leikirnir standa yfir á Stöð 2 Sport 4 HD.


Tengdar fréttir

Wenger: Verðum að sækja gegn Bayern

Ef Arsenal ætlar upp úr riðli í Meistaradeildinni verður það að fá einhver stig út úr næstu tveimur leikjum gegn Þýskalandsmeisturum Bayern München.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×