Enski boltinn

Agüero frá keppni í mánuð

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Sergio Agüero borinn af velli í byrjun mánaðarins.
Sergio Agüero borinn af velli í byrjun mánaðarins. vísir/getty
Sergio Agüero, framherji Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta, verður frá keppni næsta mánuðinn vegna meiðsla.

Argentínumauðrinn var borinn af velli í landsleik gegn Ekvador 9. október eftir að skora fimm mörk í 6-1 sigri á Newcastle sex dögum áður.

„Agüero verður frá í mánuð. Kannski fáum við Clichy til baka í næstu viku en Fabian Delph og David Silva verða klárir,“ sagði Manuel Pellegrini, knattspyrnustjóri Man. City, á blaðamannafundi í dag fyrir leik liðsins í Meistaradeildinni annað kvöld.

Agüero er búinn að skora sex mörk í átta leikjum í úrvalsdeildinni á þessari leiktíð, en fimm þeirra komu í síðasta leik sem hann spilaði gegn Newcastle.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×