Fótbolti

Arsenal vann 2-0 sigur á Bayern og fékk sín fyrstu stig | Sjáið mörkin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Arsenal-menn fagna í kvöld.
Arsenal-menn fagna í kvöld. Vísir/EPA
Arsenal var gríðarlega mikilvægan 2-0 sigur á Bayern München á Emirates-leikvanginum í Meistaradeildinni í kvöld en þetta voru fyrstu stig Arsenal í Meistaradeildinni á leiktíðinni eftir töp í tveimur fyrstu leikjum sínum.

Varamaðurinn Olivier Giroud var hetja Arsenal en hann kom Arsenal í 1-0 aðeins þremur mínútum eftir að hann kom inná sem varamaður. Mesut Özil innsiglaði síðan sigurinn í uppbótartíma.

Manuel Neuer, markvörður Bayern München, átti eina af markvörslum tímabilsins í fyrri hálfleik en hann gerði slæm mistök í marki Giroud.

Leikmenn Bayern München voru mun meira með boltann í upphafi leiks en Arsenal-liðið datt aftarlega og beið átekta.

Thiago fékk ágætt færi á 12. mínútu en Petr Cech varði og Douglas Costa var nálægt því að skora á 19. mínútu eftir skemmtilega gabbhreyfingu á vinstri vængnum en aftur kom Cech til bjargar.

Arsenal-liðið óx ásmegin eftir því sem leið á hálfleikinn. Alexis Sánchez fékk ágætt skotfæri í teignum en hitti ekki markið og Theo Walcott var ógnaði.

Theo Walcott hélt síðan að hann væri að koma Arsenal í 1-0 á 34. mínútu en Manuel Neuer varði þá skalla frá honum á ótrúlegan hátt en tilþrifin minntu á heimsfræga markvörslu Gordon Banks frá Pele á HM 1970.

Alexis Sánchez var næstum því búinn að leggja upp mark fyrir Douglas Costa rétt fyrir hálfleikinn eftir tap hann tapaði boltanum á mjög slæmum stað en Douglas Costa skaut yfir.

Manuel Neuer gerði frábærlega í fyrri hálfleik en hann gerði slæm mistök í þeim síðari sem kostaði liðið sigurinn.

Manuel Neuer átti þá skelfilegt úthlaup í aukaspyrnu Santi Cazorla og varamaðurinn Olivier Giroud nýtti sér það og kom boltanum í markið.

Mesut Özil innsiglaði síðan sigurinn á fjórðu mínútu í uppbótartíma, Manuel Neuer hélt að hann hefði varið en dómarinn dæmdi að boltinn hafi farið inn fyrir línuna.

Tvö frábær tilþrif Bæjara í fyrri hálfleik Mark Olivier Giroud Mark Mesut Özil



Fleiri fréttir

Sjá meira


×