Fótbolti

Rakitic með tvö mörk fyrir Barcelona í Hvíta-Rússlandi | Sjáið mörkin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Leikmenn Barcelona fagna hér í kvöld.
Leikmenn Barcelona fagna hér í kvöld. Vísir/EPA
Barcelona er með þriggja stiga forskot á toppi E-riðils Meistaradeildarinnar  eftir 2-0 útisigur á BATE Borisov í kvöld.

Króatinn Ivan Rakitic afgreiddi BATE Borisov með því að skora blði   í sigri Barcelona í Hvíta-Rússlandi.

Ivan Rakitic byrjaði á varamannabekk Barcelona en kom inn á í fyrri hálfleiknum og gerði síðan út um leikinn í seinni hálfleiknum.

Ivan Rakitic kom Barcelona í 1-0 á 48. mínútu með frábæru skoti af um 17 til 18 metra færi eftir sendingu frá Neymar.

Ivan Rakitic bætti síðan við sínu öðru marki á 65. mínútu eftir að hafa lyft boltanum skemmtilega yfir markvörð BATE. Það var aftur Neymar sem átti stoðsendinguna.



Rakitic kemur Barcelona í 1-0 Ivan Rakitic kemur Börsungum í 2-0



Fleiri fréttir

Sjá meira


×