Fótbolti

Fyrsti sigurinn hjá Kára og félögum | Úrslit kvöldsins í Meistaradeildinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Markus Rosenberg fagnar sigurmarki sínu í kvöld.
Markus Rosenberg fagnar sigurmarki sínu í kvöld. Vísir/EPA
Kári Árnason og félagar í sænska liðinu Malmö eru komnir á blað í Meistaradeildinni eftir sigur á úkraínska liðinu Shakhtar Donetsk í 3. umferð riðlakeppninnar í kvöld. Atlético Madrid vann stórstigur og Wolfsburg er á toppnum í riðli Manchester United.

Kári Árnason spilaði allan leikinn í vörn Malmö sem vann 1-0 sigur á Shakhtar Donetsk á heimavelli.

Markus Rosenberg skoraði eina mark leiksins strax á 17. mínútu en Malmö-menn fengu fjölda færa til að bæta við mörkum það besta þegar Andriy Pyatov varði víti frá Nikola Djurdjić.  

Malmö var búið að tapa fyrstu tveimur leikjum sínum á móti Paris Saint-Germain og Real Madrid en liðið er nú í 3. sæti, fjórum stigum á eftir toppliðunum.

Wolfsburg er með tveggja stiga forskot á Manchester United og CSKA Moskvu í A-riðlinum eftir 2-0 sigur á PSV Eindhoven í kvöld en PSV Eindhoven, sem vann United í fyrstu umferð, hefur ekki náð í stig síðan.

Atlético Madrid komst upp að hlið Benfica á toppi C-riðils eftir 4-0 heimasigur á Astana á sama tíma og Galatasaray vann 2-1 sigur á Benfica.

Benfica komst yfir í upphafi leiks í Tyrklandi en Selcuk Inan jafnaði úr víti og Lukas Podolski skoraði síðan sigurmarkið.

Juventus gerði bara markalaust jafntefli á móti Borussia Mönchengladbach á heimavelli og hefur bara eins stigs forskot á Manchester City eftir að Belginn Kevin De Bruyne tryggði City-liðinu öll stigin í uppbótartíma.

Lukas Podolski tryggði Galatasaray öll þrjú stigin.Vísir/getty
Úrslit og markaskorarar í leikjum kvöldsins í Meistaradeildinni:



A-riðill

Malmö - Shakhtar Donetsk    1-0

1-0 Markus Rosenberg (17.).

Paris Saint-Germain - Real Madrid    0-0



B-riðill

CSKA Moskva - Manchester United    1-1

1-0 Seydou Doumbia (15.), 1-1 Anthony Martial (65.).



Wolfsburg - PSV Eindhoven    2-0

1-0 Bas Dost (47.), 2-0 Max Kruse (57.).

C-riðill

Atlético Madrid - Astana    4-0

1-0 Saúl (23.), 2-0 Jackson Martínez (29.), 3-0 Óliver Torres (63.), 4-0 Sjálfsmark Denys Dedechko (89.)



Galatasaray - Benfica    2-1

0-1 Nicolás Gaitán (2.), 1-1 Selcuk Inan, víti (19.), 2-1 Lukas Podolski (33.).



D-riðill

Manchester City - Sevilla    2-1

0-1 Yevhen Konoplyanka (30.), 1-1 Sjálfsmark (36.), 2-1 Kevin De Bruyne (90.+1).

Juventus - Borussia Mönchengladbach    0-0




Fleiri fréttir

Sjá meira


×