Fótbolti

Scholes, Rio og Hargreaves: Hugmyndsnautt og lélegt hjá United

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Wayne Rooney kvartar í dómaranum í gærkvöldi.
Wayne Rooney kvartar í dómaranum í gærkvöldi. vísir/getty
Manchester United er með fjögur stig í B-riðli Meistaradeildar Evrópu í fótbolta eftir 1-1 jafntefli gegn CSKA Moskvu í Rússlandi í gærkvöldi. United er aðeins búið að vinna einn leik af þremur, en liðið olli vonbrigðum í gær eftir að pakka saman Everton, 3-0, um helgina.

Þrír fyrrverandi leikmenn Manchester United; Paul Scholes, Rio Ferdinand og Owen Hargreaves, sem allir voru í byrjunarliðinu í Moskvu fyrir sjö árum þegar liðið vann Meistaradeildina, höfðu fátt fallegt um United að segja í myndveri BT Sport eftir leikinn.

„Maður býst við að liðið skapi sér meira og að menn taki ákveðin hlaup í gegnum vörnina. Það er enginn að skapa neitt. Maður myndi halda að það væru einhver gæði þarna með Schweinsteiger og Herrera,“ sagði Paul Scholes og Rio Ferdinand tók undir orð félaga síns.

Gary Lineker ræðir við United-mennina þrjá á Meistaradeildarkvöldi BT Sport í gærkvöldi.mynd/skjáskot
Spurningarnar margar en svörin fá

„Ég get ekki ímyndað mér hversu pirraður Louis van Gaal er núna eftir að vinna Everton 3-0 og fara svo þetta. Það var ekki næstum því sami kraftur í liðinu,“ sagði Rio.

„Rétta orðið er hugmyndasnautt. Mér finnst eins og ég eins og biluð plata. Þetta er það sama og ég segi í hvert einasta skipti sem ég horfi á United.“

„Það eru bara engir mögulegar í boði þegar boltinn er úti á kanti, inn á miðjunni eða framarlega á vellinum. Þetta er einfandlega ekki Manchester United,“ sagði Rio Ferdinand.

United er búið að eyða meira en 200 milljónum punda í nýja leikmenn á síðustu tveimur árum og finnst Owen Hargreaves að liðið eigi að geta búið til meira í sókninni.

„Þetta var ekki slæmt en ekki gott. Með alla þessa leikmenn á vellinum hlýturðu að geta skapað þér meira,“ sagði Hargreaves.

„United var 70 prósent með boltann í fyrri hálfleik en olli CSKA engum vandræðum. Í seinni hálfleik var liðið beinskeittara með Fellaini inn á vellinum, en spurningarnar í kringum United liðið eru enn þá margar og svörin fá,“ sagði Owen Hargreaves.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×