Fótbolti

„Gæti sett orðspor deildarinnar í hættu“

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Úr leik með Barcelona.
Úr leik með Barcelona. Vísir/Getty
Susana Monje, einn varaforseta Barcelona, segir að ásakanir aðstoðardómara um mögulega hagræðingu úrslita leiks liðsins gegn Real Madrid, gætu haft víðtæk áhrif.

Spænskir fjölmiðlar greindu frá því í morgun, líkt og Vísir hefur fjallað um, að aðstoðardómari á Spáni hefur kvartað undan því við lögreglu að honum hafi verið gert að dæma Real Madrid í hag þegar liðið mætir Barcelona í El Clásico-leik liðanna í næsta mánuði.

Ekki er búið að gefa út hver verður dómari leiksins en í fjölmiðlum er fullyrt að dómararnir viti það sjálfir. Umræddur aðaldómari leiksins á að hafa haft samband við aðstoðardómarann og beðið hann um að dæma Real Madrid í hag í leiknum.

Nafni aðstoðardómarans er haldið leyndu og er málið tekið alvarlega. Það er nú í rannsókn hjá spænska knattspyrnusambandinu.

Monje vonast til að ásakanir aðstoðardómarans reynist ekki réttar. „Ef þetta er rétt þá er orðspor deildarinnar okkar í hættu,“ sagði hún.

Fréttirnar komu hins vegar Diego Simeone, stjóra Atletico Madrid, ekki á óvart. „Deildin er hættulega upp sett fyrir Real Madrid. Real getur ekki unnið titilinn bara einu sini á sjö árum. Ég held að því miður sé ekkert annað lið sem geti unnið deildina í ár,“ sagði  Simeone.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×