Leikjavísir

Íslenski tölvuleikurinn Dot-A-Lot kominn út

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Að baki MouseTrap standa þeir Ágúst Ævar Guðbjörnsson, grafískur hönnuður, Jóhann Helgi Ólafsson hugbúnaðarhönnuður og Vilhjálmur Snær Ólafsson leikja- og hljóðhönnuður.
Að baki MouseTrap standa þeir Ágúst Ævar Guðbjörnsson, grafískur hönnuður, Jóhann Helgi Ólafsson hugbúnaðarhönnuður og Vilhjálmur Snær Ólafsson leikja- og hljóðhönnuður.
Tölvuleikjafyrirtækið MouseTrap gaf út sinn fyrsta tölvuleik í dag og ber leikurinn nafnið Dot-A-Lot. Að baki MouseTrap standa þeir Ágúst Ævar Guðbjörnsson, grafískur hönnuður, Jóhann Helgi Ólafsson hugbúnaðarhönnuður og Vilhjálmur Snær Ólafsson leikja- og hljóðhönnuður.

„Við erum mjög ánægðir að hafa fengið flýtimeðferð frá Apple til að koma leiknum í loftið á áætluðum tíma og erum að sjálfsögðu afar stoltir að sjá leikinn kominn út. Upphaflega spratt hugmyndin út frá leiknum Snake en hins vegar er leikurinn á allt öðru formi og gengur meira út á að lifa af. Í fyrstu verður leikurinn fáanlegur fyrir Apple síma og þar í framhaldinu kemur Android,” segir Vilhjálmur.

Mikil þróunarvinna liggur að baki Dot-A-Lot sem hófst snemma á þessu ári. MouseTrap hefur á sínum snærum fjölda innlendra sem erlendra álitsgjafa, auk þess sem stór hópur fólks, mestmegnis á aldrinum 16-32 ára, reynslukeyrir leikina á hverju stigi þróunar.

„Við höfum fengið góð viðbrögð við leiknum sem er mjög ánægjulegt. Það er mikið lagt í leikjaspilunina, tónlistina og auk þess höfum við hugsað mikið um smáatriðin í leiknum. Allt þetta skipir miklu máli við hönnun tölvuleiks. Við vonum svo auðvitað að sem flestir prófi leikinn og hafi gaman af,” segir Jóhann.

Að neðan má sjá sýnishorn úr leiknum.


Tengdar fréttir

Sækja á heimsmarkað

Sprotafyrirtækið Radiant Games stefnir á að gefa út leik sinn, Box Island, á heimsvísu í næsta mánuði.

GameTíví: Tíu bestu hryllingsleikirnir

Þeir Óli og Svessi í GameTíví gerðu lista yfir tíu bestu hryllingsleikina, en hann er unninn upp úr könnun á Facebook síðu þeirra í tilefni af útgáfu Until Dawn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×