Fótbolti

Barcelona skoraði ekki gegn C-deildarliði

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Heimamenn sækja að marki Barcelona í kvöld.
Heimamenn sækja að marki Barcelona í kvöld. Vísir/Getty
Barcelona mátti sætta sig við markalaust jafntefli gegn C-deildarliðinu Villanovense er liðin mættust í fyrri viðureign liðanna í 32-liða úrslitum spænsku bikarkeppninnar í kvöld.

Luis Enrique, stjóri Barcelona, kaus að hvíla marga fastamenn sína og gaf ungum leikmönnum tækifæri sem þeim gekk illa að nýta.

Marc Bartra átti eitt besta færi leiksins fyrir Börsunga en skalli hans seint í leiknum var varinn.

Síðari leikur liðanna fer fram á Nývangi í byrjun desember.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×