Fótbolti

Spila við Pólland og Slóvakíu í nóvember

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Birkir Bjarnason verður væntanlega á ferðinni með landsliðinu í nóvember.
Birkir Bjarnason verður væntanlega á ferðinni með landsliðinu í nóvember. vísir/anton
Undirbúningar íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu fyrir EM hefst strax í næsta mánuði.

KSÍ tilkynnti í dag að liðið muni þá spila tvo vináttulandsleiki. Andstæðingar Íslands verða Pólverjar og Slóvakar en bæði lið verða einnig á EM í Frakklandi.

Fyrri leikurinn er gegn Pólverjum í Varsjá þann 13. nóvember en fjórum dögum síðar verður leikir gegn Slóvökum í Zilina.

Þetta er hið besta mál fyrir liðið og þjálfara þess. Verður áhugavert að sjá hvernig strákunum mun vegna í þessum rimmum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×