Fótbolti

Hægt að sækja um miða á EM í desember

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Tólfan mun örugglega fjölmenna til Frakklands.
Tólfan mun örugglega fjölmenna til Frakklands. vísir/vilhelm
Miðasöluvefur UEFA fyrir EM í Frakklandi næsta sumar hefur verið opnaður.

Þar má finna ýmsar gagnlegar upplýsingar fyrir áhugasama. Meðal annars allt um miðasöluna sjálfa.

Einnig má skoða leikjaáætlun, leikstaði, kort sem sýnir vegalengdir milli keppnisstaða sem og verðflokka á miðum.

Dregið verður í riðla fyrir EM í Paris þann 12. desember og umsóknarglugginn á síðunni mun síðan opna tveim dögum síðar.

Hér má skoða miðasöluvef UEFA.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×