Ísland aftur efst Norðurlandaþjóða á FIFA-listanum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. október 2015 09:14 Kolbeinn Sigþórsson fagnar marki með landsliðinu. Vísir/Ernir
Ísland er áfram í 23. sæti á nýjum styrkleikalista Alþjóðaknattspyrnusambandsins en nýr listi var gefinn út í morgun. Ísland hefur aldrei verið ofar. Ísland vann frábæran útisigur á Hollandi síðan síðasti listi var gefinn út en náði líka "bara" markalausu jafntefli á móti Kasakstan á heimavelli sem á sinn þátt í því að íslenska liðið kemst ekki ofar. Danir detta aftur á móti niður um sex sæti á listanum, úr 22. sæti niður í 28. sæti sem þýðir að Ísland á aftur besta knattspyrnulandslið Norðurlandanna. Svíar lækka sig líka um níu sæti og eru núna 22 sætum neðar en Ísland á listanum. Norðmenn hækka sig um heil 35 sæti á listanum og er nú komnir upp í 34. sæti listans. Noregur var áður í 69. sæti. Ísland hefur aldrei verið ofar á listanum en liðið var einnig í 23. sæti á júlí- og september-listanum. Liðið datt niður um eitt sæti á listanum sem var gefinn út í ágúst. Argentínumenn sitja áfram í efsta sæti en Þjóðverjar komust upp fyrir Belga og í 2. sæti. Belgar eru í 3. sæti og Portúgalar fóru upp um tvö sæti og upp í 4. sæti. Wales er komið upp í 8. sæti og hefur aldrei verið ofar en í næsta sæti fyrir ofan Gareth Bale og félaga eru núna Brasilíumenn.Allur FIFA-listinn fyrir október 2015.Staða Norðurlandaþjóðanna á nýjum FIFA-lista: 23. sæti Ísland 28. sæti Danmörk (niður um 6 sæti) 34. sæti Noregur (upp um 35 sæti) 45. sæti Svíþjóð (niður um 9 sæti) 64. sæti Finnland (upp um 28 sæti) 85. sæti Færeyjar (niður um 10 sæti)
Fótbolti Íslenski boltinn Mest lesið Kennir kynlífi með kærastanum um að hún féll á lyfjaprófi Sport Neitar að tjá sig um ósættið við Kristófer: „Á milli mín og hans“ Körfubolti Íslandsmethafinn segir enga virðingu borna fyrir íþróttafólkinu: „Út í hött“ Sport Missti tönnina, tók hana upp og fór í bikarúrslit Handbolti Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Íslenski boltinn Ekki lengur hægt að vera allsber og taka orminn Körfubolti Ólympíufari dæmdur í 21 árs fangelsi fyrir barnaníð Sport Annar keppandi stal skíðum Fróða á HM Sport „Þú ert að tengja þetta við Rashford“ Enski boltinn Vilja banna fullorðnum leikmönnum að nota barnalegghlífar Fótbolti Fleiri fréttir Echeverri má loks spila fyrir Man City Valdi Laudrup besta fótboltamann sögunnar Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja „Þú ert að tengja þetta við Rashford“ Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Liverpool rak stjóra kvennaliðsins Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Vilja banna fullorðnum leikmönnum að nota barnalegghlífar Tekinn af velli eftir að hann fékk morðhótanir úr stúkunni Sektin hans Messi er leyndarmál Ten Hag segir leikmenn í dag of viðkvæma Elísabet byrjar á tveimur töpum Orri og félagar þurfa að koma til baka á Santiago Bernabéu Komnir með þrettán stiga forskot Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Haaland sneri aftur og var hetjan Atli Sigurjóns framlengir við KR Darwin Núnez langt frá efstu mönnum í klúðruðum dauðafærum Labbar inn í stjórn UEFA án kosningar og fær fyrir 23 milljónir á ári Tannvesen á Mbappé sem spilar ekki í kvöld Ronaldo sýndi óvænta óeigingirni Ótrúlegir taktar á æfingu hjá Pablo Punyed Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR „Fyrr skal ég dauður liggja“ Slot í bann og stýrir Liverpool ekki í kvöld Allt annað en sáttur með Frey FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Sjá meira