Fótbolti

Barcelona skipar rúmensku félagi að breyta félagsmerkinu

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Leikmenn Otelul Galati verjast hér á Old Trafford í Meistaradeildinni árið 2011.
Leikmenn Otelul Galati verjast hér á Old Trafford í Meistaradeildinni árið 2011. Vísir/Getty
Spænska stórveldið Barcelona hefur tilkynnt rúmneska félaginu Otelul Galati að því muni berast kæra ef þeir breyta ekki merki félagsins á næstu mánuðum.

Rúmneska félagið sem leikur í 2. deild í heimalandinu breytti merkinu á síðasta tímabili en það þykir of líkt merki Barcelona.

Sendu forráðamenn Barcelona félaginu bréf sem tilkynnti að félagið mætti eiga von á kæru yrði merkinu ekki breytt.

Otelul Gatali sem lék í Meistaradeildinni fyrir aðeins fjórum árum breytti merki félagsins í fyrra í tilefni 50 ára afmæli félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×