Óttast að ákærur á hendur heilbrigðisstarfsfólki muni kosta mannslíf sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 5. október 2015 11:45 Frá fyrirtöku málsins í júní. vísir/pjetur „
Ef þessum ákærum verður haldið til streitu þá álít ég það sem svo að það gæti kostað heilsutjón og mannslíf. Það eru engir hagsmunir fyrir almannavaldið að sækja fólk til saka við svona aðstæður,“ segir Einar Gautur Steingrímsson, lögmaður hjúkrunarfræðingsins sem ákærður er fyrir manndráp af gáleysi. Fyrirtaka í málinu var fyrirhuguð í dag, en var frestað eftir að Einar féll frá frávísunarkröfu sinni. Hann segir að dómari þurfi að skoða rökin fyrir frávísun, hvort sem gerð verði krafa um það eða ekki. Það verði gert við aðalmeðferð málsins í nóvember. „Ég vildi frekar að þetta færi fram í einu lagi, þegar réttarhöldin fara fram, heldur en í tvennu lagi. Þannig að fyrst verður fjallað um frávísunina og svo efnið.“ Þetta er í fyrsta sinn sem starfsmaður Landspítalans er ákærður fyrir atvik af þessu tagi. Einar telur að heilbrigðiskerfið muni breytast, verði starfsmaðurinn dæmdur. „Ég held því blákalt fram að með því að sækja heilbrigðisfólk til saka sé verið að stofna lífi sjúklinga í hættu, sökum þess að það verður illmögulegt að rannsaka atvik sem upp koma á spítölum og læra af þeim, því þá forðast menn að tjá sig til að fá ekki á sig ákæru. Refsilöggjöfin er til að vernda líf og heilsu fólks en ekki til að setja þessa hagsmuni í hættu eins og gert er með ákærunni,“ segir hann. Hjúkrunarfræðingurinn heldur fram sakleysi sínu í málinu. Ríkissaksóknari lagði fram ákæru á hendur honum og Landspítalanum í maí fyrra, en hjúkrunarfræðingurinn er sakaður um röð mistaka sem dró sjúkling til dauða árið 2012. Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur hinn 4. nóvember næstkomandi.
Hjúkrunarfræðingur sýknaður af ákæru um manndráp Dómsmál Landspítalinn Tengdar fréttir Ekkja mannsins féll frá bótakröfu Fyrirtaka í máli hjúkrunarfræðingsins sem ákærður er fyrir manndráp af gáleysi fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 13. október 2014 09:45 Segir ákæru ríkissaksóknara gegn hjúkrunarfræðingi á spítalanum mikið áfall Forstjóri Landspítalans segir ákæru ríkissaksóknara gegn hjúkrunarfræðingi á spítalanum vera mikið áfall. Hún valdi straumhvörfum og skapi óvissu í störfum heilbrigðisstarfsmanna. 5. júlí 2014 13:02 Óskað eftir frekari gögnum í máli hjúkrunarfræðingsins Ríkissaksóknari lagði fram ákæru á hendur Landspítalanum og hjúkrunarfræðingi gjörgæsludeildar í maí síðastliðnum fyrir manndráp af gáleysi. 4. september 2014 11:15 Ríkissaksóknari segir að greina þurfi refsisvert gáleysi frá óhappatilviljun Um manndráp af gáleysi er fjallað í hegningarlögum og samkvæmt þeim er um refsivert gáleysi að ræða þegar sá sem átti að gera sér grein fyrir tilteknum ástæðum og bregðast við í samræmi við það hafi hins vegar ekki gætt þeirrar varkárni sem af honum eða henni má ætla. 26. maí 2014 10:19 Röð mistaka leiddi til andlátsins Mistök hjúkrunarfræðingsins áttu sér stað á kvöldvakt sem hún vann í beinu framhaldi af dagvakt. 22. maí 2014 16:19 Starfshópur um óvænt dauðsföll í heilbrigðisþjónustunni lokið verki Eina málið sem leitt hefur til ákæru er mál hjúkrunarfræðingsins sem ákærð var fyrir manndráp af gáleysi. 4. september 2015 18:30 Ákæran gæti gert fólki erfiðara fyrir að sækja bætur Lögmaður segir að nýleg ákæra á hendur hjúkrunarfræðingi geti leitt til þess að þolendur læknamistaka muni eiga erfitt verk fyrir höndum, ætli þeir sér að sækja bætur frá ríkinu. 25. maí 2014 14:38 Mest lesið Lést í umferðarslysi við Álfabakka Innlent Tuttugu og þrjár konur stíga fram og fórnarlömb raðnauðgara talin á sjöunda tug Erlent Erlendir ferðamenn gripnir glóðvolgir Innlent „Auðvitað lét ég hann heyra það“ Innlent Þingkonur þjarma að heilbrigðisráðherra Innlent Flugmaðurinn sem týndi herþotu tjáir sig Erlent Þurfa ekki að skila Stálskipaauðnum Innlent Hinir handteknu alveg ótengdir Innlent Handtökur hér á landi þegar stór barnaníðssíða var tekin niður Innlent „Þetta er bara brandarakvöld“ Innlent Fleiri fréttir Kvikugangur talinn ná langleiðina að flugvallarstæði Hvassahrauns Alþingi hafi átt að vera upplýst Stöðvuðu smygl á tuttugu þúsund Oxycontin-töflum Þrumustuð þegar lag Barnamenningarhátíðar var frumflutt Hinir handteknu alveg ótengdir Stjórnarformaður vísisjóðs nýr forseti Félagsvísindasviðs HÍ Engin virkni í sprungunni og umfangsmikil lögregluaðgerð Erlendir ferðamenn gripnir glóðvolgir Harma að upplýsingar hafi verið sendar út fyrir mistök Tveimur sleppt og þrír eftir í haldi Þingkonur þjarma að heilbrigðisráðherra Þurfa ekki að skila Stálskipaauðnum Furðar sig á undirritun án aðkomu Alþingis Vilja hagræða í Reykjavík og leita til borgarbúa Grindvíkingum hleypt inn í bæinn á ný Fimm ára nauðgunardómur stendur Boðar brottvísanir brotamanna og afnám átján mánaða reglu Handtökur hér á landi þegar stór barnaníðssíða var tekin niður Segir Viðreisn óforbetranlegan stjórnlyndisflokk Aðalmeðferð hafin í Menningarnæturmáli Bein útsending: Þjóðaröryggi – Íslendingar og hafið Stöðumælaverðir lausir við ákvörðun um sekt Svæðisstjóri Vegagerðarinnar sleginn vegna banaslyssins Möguleiki að kvikugangurinn opnist nærri Reykjanesbraut Möguleiki að gos hefjist norðanmegin en ólíklegt þó Af neyðarstigi og á hættustig 48 þúsund króna sekt fyrir að beita hund harðýðgi „Þetta er bara brandarakvöld“ Hafa núna skrifborð þar sem áður var flugstýri Meðalævilengd eykst milli ára og ungbarnadauði minnkar Sjá meira
Ekkja mannsins féll frá bótakröfu Fyrirtaka í máli hjúkrunarfræðingsins sem ákærður er fyrir manndráp af gáleysi fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 13. október 2014 09:45
Segir ákæru ríkissaksóknara gegn hjúkrunarfræðingi á spítalanum mikið áfall Forstjóri Landspítalans segir ákæru ríkissaksóknara gegn hjúkrunarfræðingi á spítalanum vera mikið áfall. Hún valdi straumhvörfum og skapi óvissu í störfum heilbrigðisstarfsmanna. 5. júlí 2014 13:02
Óskað eftir frekari gögnum í máli hjúkrunarfræðingsins Ríkissaksóknari lagði fram ákæru á hendur Landspítalanum og hjúkrunarfræðingi gjörgæsludeildar í maí síðastliðnum fyrir manndráp af gáleysi. 4. september 2014 11:15
Ríkissaksóknari segir að greina þurfi refsisvert gáleysi frá óhappatilviljun Um manndráp af gáleysi er fjallað í hegningarlögum og samkvæmt þeim er um refsivert gáleysi að ræða þegar sá sem átti að gera sér grein fyrir tilteknum ástæðum og bregðast við í samræmi við það hafi hins vegar ekki gætt þeirrar varkárni sem af honum eða henni má ætla. 26. maí 2014 10:19
Röð mistaka leiddi til andlátsins Mistök hjúkrunarfræðingsins áttu sér stað á kvöldvakt sem hún vann í beinu framhaldi af dagvakt. 22. maí 2014 16:19
Starfshópur um óvænt dauðsföll í heilbrigðisþjónustunni lokið verki Eina málið sem leitt hefur til ákæru er mál hjúkrunarfræðingsins sem ákærð var fyrir manndráp af gáleysi. 4. september 2015 18:30
Ákæran gæti gert fólki erfiðara fyrir að sækja bætur Lögmaður segir að nýleg ákæra á hendur hjúkrunarfræðingi geti leitt til þess að þolendur læknamistaka muni eiga erfitt verk fyrir höndum, ætli þeir sér að sækja bætur frá ríkinu. 25. maí 2014 14:38