Fótbolti

Navas grét af gleði þegar félagsskipti David De Gea féllu niður

Keylor Navas
Keylor Navas Vísir/getty
Keylor Navas, markvörður Real Madrid, segir að hann hafi grátið af gleði þegar félagsskipti hans til Manchester United féllu niður á síðustu stundu.

Var það hluti félagsskipta David De Gea til Real Madrid að Navas myndi ganga til liðs við enska félagið í staðin. Félagsskiptin féllu niður á síðustu stundu en liðin féllu á tíma við að skila öllum pappírum.

Þrátt fyrir að hafa samþykkt kaup og kjör hjá Manchester United virðist svo sem Navas hafi ekki verið hrifinn af því að ganga til liðs við Manchester United.

„Ég grét af gleði þegar ég komst að því að ég væri ekki að fara neitt, þetta var erfiður tími. Ég vildi ekki fara neitt enda er Madríd heimili mitt. Ég skrifaði undir hjá Manchester United í miðri læknisskoðun en ég vildi ekki fara héðan, ég vonast til þess að skrifa mína eigin sögu hjá Real Madrid á þessu tímabili.“

Navas hefur verið í byrjunarliði Real Madrid í öllum leikjum liðsins á þessu tímabili en hann virðist vera fyrsti kostur hjá Rafael Benitez, knattspyrnustjóra liðsins, fyrst að ekki tókst að næla í De Gea.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×