Fótbolti

Börsungar biðu afhroð gegn Celta Vigo

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Celta-menn fagna einu fjögurra marka sinna í kvöld.
Celta-menn fagna einu fjögurra marka sinna í kvöld. Vísir/Getty
Barcelona beið afhroð þegar liðið mætti Celta Vigo í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Lokatölur 4-1, Celta Vigo í vil en liðið er enn ósigrað í deildinni

Agudo Durán kom Celta yfir á 26. mínútu og aðeins fjórum mínútum síðar bætti Iago Aspas, fyrrum leikmaður Liverpool, öðru marki við.

Hann var svo aftur á ferðinni á 56. mínútu þegar hann skoraði sitt annað mark og þriðja mark Celta.

Neymar minnkaði muninn í 3-1 á 80. mínútu en sænski framherjinn John Guidetti gulltryggði sigur Celta þegar hann skoraði fjórða mark liðsins þremur mínútum síðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×