Spieth lék best á öðrum hring - Stenson enn í forystu 26. september 2015 11:28 Jordan Spieth les pútt á öðrum hring. Getty
Jordan Spieth lék best allra á öðrum hring á Coca Cola meistaramótinu sem fram fer á East Lake vellinum en hann kom inn á 66 höggum eða fjórum undir pari. Spieth vann sig upp í annað sætið í mótinu en hann er samtals á sex höggum undir pari, þremur á eftir Henrik Stenson sem hefur leikið frábært golf hingað til og er á níu undir pari. Paul Casey er í þriðja sæti en hann er á fimm höggum undir pari eftir hringina tvo. Aðstæður voru erfiðar á öðrum hring í gær og aðeins örfáir kylfingar undir pari en bæði Jason Day og Rory McIlroy léku hringinn á 71 höggi eða einum yfir pari sem er afar óvanalegt hjá þessum tveimur bestu kylfingum heims. Bein útsending frá þriðja hring á Coca-Cola meistaramótinu hefst á Golfstöðinni klukkan 17:00.
Golf Mest lesið Gleymdi að sleppa boltanum og felldi sjálfan sig Sport Vatnsbrúsaspark gæti leitt til lengra banns Enski boltinn FBI varar við þjófum sem herja á íþróttafólk Sport Antonio útskrifaður eftir rúmlega þriggja vikna spítaladvöl Enski boltinn Fertugur LeBron gæti spilað „fimm til sjö ár“ til viðbótar Körfubolti Fékk næstum því hjartaáfall í framlengingunni Sport Magnus Carlsen mættur aftur í glænýjum gallabuxum Sport Egill og Garima tennisfólk ársins Sport Víkingar minnast vinar sem lést á 27 ára afmæli sínu Fótbolti Áfrýjun Barcelona hafnað og tíminn að renna út Fótbolti Fleiri fréttir Gunnlaugur í úrvalslið Evrópu og bestur ásamt Huldu Meiddist við að elda jólasteikina og missir af fyrstu mótum ársins Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Tiger og sonur í forystu á feðgamótinu Verða að hafa fæðst sem konur til að fá að keppa á LPGA Vill verðlaunafé á Ryder Cup til að styrkja góð málefni Meiddur Tiger segist enn hafa eldmóðinn Sjá meira