Körfubolti

Þessi lið mætast í 16-liða úrslitunum á EM

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Pau Gasol og félagar í spænska landsliðinu mæta Pólverjum í 16-liða úrslitunum á EM í körfubolta.
Pau Gasol og félagar í spænska landsliðinu mæta Pólverjum í 16-liða úrslitunum á EM í körfubolta. vísir/getty
Riðlakeppninni á Evrópumótinu í körfubolta lauk í dag en nú er ljóst hvaða lið mætast í 16-liða úrslitunum.

Riðlarnir fjórir voru leiknir í fjórum borgum víðs vegar um Evrópu; Montpellier í Frakklandi, Berlín í Þýskalandi, Zagreb í Króatíu og Ríga í Lettlandi.

Fjögur lið fóru upp úr hverjum riðli en 16-liða úrslitin hefjast með fjórum leikjum á laugardaginn. Útsláttarkeppnin er öll leikin í Lille í Frakklandi.

Þessi lið mætast í 16-liða úrslitunum:

Laugardagur 12. september:

Lettland - Slóvenía

Grikkland - Belgía

Spánn - Pólland

Frakkland - Tyrkland

Sunnudagur 13. september:

Króatía - Tékkland

Serbía - Finnland

Ísrael - Ítalía

Litháen - Georgía

Svona fór riðlakeppnin (tvö stig fengust fyrir sigur, eitt fyrir tap):

A-riðill, Montpellier

1. Frakkland      5-0     10 stig

2. Ísrael            3-2     8 stig

3. Pólland          3-2    8 stig

4. Finnland        2-3    7 stig

5. Rússland       1-4    6 stig

6. Bosnía           1-4    6 stig

B-riðill, Berlín

1. Serbía         5-0    10 stig

2. Spánn         3-2    8 stig

3. Ítalía           3-2    8 stig

4. Tyrkland      3-2    8 stig

5. Þýskaland    1-4    6 stig

6. Ísland          0-5    5 stig

C-riðill, Zagreb

1. Grikkland     5-0    10 stig

2. Króatía         3-2    8 stig

3. Slóvenía       3-2    8 stig

4. Georgía        2-3    7 stig

5. Makedónía    1-4    6 stig

6. Holland         1-4    6 stig

D-riðill, Ríga

1. Litháen         4-1    9 stig

2. Lettland        3-2    8 stig

3. Tékkland       3-2    8 stig

4. Belgía           3-2    8 stig

5. Eistland         1-4    6 stig

6. Úkraína         1-4    6 stig




Fleiri fréttir

Sjá meira


×