Þjóðverjar unnu Skota í hörkuleik | Dönum tókst ekki að skora gegn Armeníu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 7. september 2015 21:23 Þjóðverjar fagna sigrinum á Skotum. vísir/getty
Átta leikir fóru fram í undankeppni EM 2016 í kvöld. Í D-riðli vann Þýskaland 2-3 sigur á Skotum. Thomas Müller gerði tvö marka heimsmeistaranna og Ilkay Gundogan eitt. James McArthur skoraði annað mark Skota en hitt var sjálfsmark Mats Hummels. Þjóðverjar eru með 19 stig á toppi riðilsins. Pólverjar, sem unnu 8-1 sigur á Gíbraltar í kvöld, koma næstir með 17 stig. Írar, sem unnu Georgíu 1-0 með marki Jonathan Walters, eru í 3. sæti með 15 stig, fjórum stigum á undan Skotum. Dönum mistókst að skora annan leikinn í röð þegar þeir gerðu markalaust jafntefli við Armeníu í Jerevan. Danir eru í 2. sæti riðilsins með 12 stig, þremur stigum á eftir Portúgal sem vann 0-1 sigur á Albaníu. Miguel Veloso skoraði eina mark leiksins í uppbótartíma. Norður-Írland heldur toppsætinu í F-riðli þrátt fyrir 1-1 jafntefli við Ungverjaland á heimavelli. Richard Guzmics kom gestunum yfir á 74. mínútu og níu mínútum síðar vænkaðist hagur þeirra enn frekar þegar Chris Baird fékk að líta rauða spjaldið. En Kyle Lafferty tryggði Norður-Írum stig þegar hann skoraði á 93. mínútu. Í sama riðli unnu Finnar 1-0 sigur á Færeyjum og Rúmenía og Grikkland gerðu markalaust jafntefli. Rúmenar hafa aðeins fengið á sig eitt mark í undankeppninni, fæst allra liða.
EM 2016 í Frakklandi Mest lesið Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Enski boltinn Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Íslenski boltinn McGregor fundinn sekur og þarf að borga tugi milljóna í skaðabætur Sport Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Enski boltinn Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Íslenski boltinn Stelpurnar okkar rændar jöfnunarmarki? Handbolti „Bjóst bara við því að við værum að fara vinna árið eftir“ Körfubolti Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Enski boltinn Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Fótbolti Albert kemur til greina sem sá besti á Ítalíu Fótbolti Fleiri fréttir Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Í beinni: Celta Vigo - Barcelona | Börsungar vilja svara fyrir tapið síðast Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Jóhann lagði upp langþráð mark Ævintýri Róberts og félaga heldur áfram Ingibjörg og Hafrún nálgast Emilíu Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Albert kemur til greina sem sá besti á Ítalíu Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum Meistararnir og Skytturnar missa út lykilmenn Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Annað áfall fyrir Hörð sem fór til sama læknis og Rodri Ísland mætir Kósovó í sérstöku umspili Írarnir hans Heimis mæta Búlgörum Lewandowski fékk ekki að fara til Man. Utd Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Sjá meira