Íslenski boltinn

FH komið upp í Pepsi-deild kvenna

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
FH leikur í deild þeirra bestu á næsta ári.
FH leikur í deild þeirra bestu á næsta ári. vísir/anton
FH vann sér í dag sæti í Pepsi-deild kvenna eftir eins árs fjarveru.

FH-ingar töpuðu reyndar seinni leiknum gegn HK/Víkingi í umspili um sæti í Pepsi-deildinni í dag með tveimur mörkum gegn einu. Það kom þó ekki að sök því Fimleikafélagið vann fyrri leikinn í Kaplakrika, 3-1.

FH komst yfir með marki Öldu Ólafsdóttur á 18. mínútu en Elma Lára Auðunsdóttir jafnaði metin fyrir Fossvogsliðið á þeirri 31.

Staðan var 1-1 í hálfleik en strax eftir þriggja mínútna leik í seinni hálfleik fékk Berglind Bjarnadóttir, leikmaður HK/Víkings, að líta rauða spjaldið.

Einni færri tókst HK/Víkingi að komast yfir með marki Milenu Pesic á 68. mínútu en þeim tókst ekki að skora þriðja markið sem hefði tryggt þeim framlengingu.

FH vann því einvígið 4-3 og leikur í deild þeirra bestu á næsta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×