Fótbolti

Ísland er fullkomið lið fyrir Lars

Tómas Þór Þórðarsson skrifar
Lars Lagerback fagnar hér stiginu gegn Kasakstan.
Lars Lagerback fagnar hér stiginu gegn Kasakstan. Vísir/Vilhelm
Lars Lagerbäck er aftur orðinn elskaður og dáður eins og hann var í Svíþjóð þegar allt lék í lyndi þar. Sænskur blaðamaður segir Svía vera búna að átta sig á því að það var ekki rétt að láta hann fara. Allt hefur verið fyrirgefið og hefur Lars fengið algjöra uppreisn æru.

„Lars elskar Ísland. Ég hef aldrei séð hann svona ánægðan,“ segir sænski blaðamaðurinn Robert Börjesson, einn helsti fótboltaskríbent Svía sem starfar á Expressen, um landsliðsþjálfarann í fótbolta, Lars Lagerbäck. Robert var, eins og fleiri sænskir blaðamenn, staddur á Laugardalsvellinum þegar Ísland tryggði sér sæti á EM 2016.

Sænska pressan, sem var vægast sagt óvægin í garð Lars undir það síðasta þegar hann stýrði sænska landsliðinu, hefur fylgt árangri hans eftir á Íslandi. Börjesson segir Lars vera vinsælli í dag en hann var á hátindinum með Svíþjóð.

„Honum leið ekki illa undir það síðasta,“ segir Börjesson.

„Svíar eru bara kröfuharðir og ef ég á að vera alveg heiðarlegur urðum við einfaldlega gráðugir. Okkur fannst það orðið sjálfsagður hlutur að við spiluðum á HM og EM.“

Svíþjóð er með Zlatan

Lars, fyrst ásamt Tommy Söderberg og síðar einn, kom sænska liðinu á fimm stórmót í röð frá 2000-2008; tvær heimsmeistarakeppnir og þrjú Evrópumót.

„Fólk var farið að heimta að við kæmumst í undanúrslit eða úrslit á stórmótum. Svíþjóð er bara lítið land og við stóðum okkur ágætlega.  Þetta var mjög ósanngjörn krafa og gagnrýni á Lars. Flestir átta sig á því núna hversu ósanngjarnt þetta var eins og árangurinn hefur verið eftir að Lars hætti,“ segir Börjesson.

Hann segir að allir hafi verið meðvitaðir um að Lars væri góður þjálfari, en þeir vildu meira. Þeir vildu nýtt andlit sem gæti farið með liðið lengra á stórmótunum. Erik Hamrén tók við liðinu og mistókst að koma því á HM.

„Ísland var með Svíum í umspili um sæti á HM. Og núna er Lars búinn að koma Íslandi á EM í september þegar Svíþjóð er enn í basli í sínum riðli. Ég vil benda á að Erik Hamrén er með Zlatan Ibrahimovic í sínu liði. Ég vil samt ítreka að fólk áttaði sig á hversu flottur þjálfari Lars er, það hélt bara að Hamrén væri maðurinn sem gæti jafnvel unnið stórmót,“ segir Börjesson.

„Lars er með svo mikla reynslu og hún í bland við þennan leikmannhóp sem gerir allt sem hann biður um er fullkomin blanda.“Vísir/Vilhelm
Aftur elskaður og dáður

Samband Lars við sænska blaðamenn hefur batnað til muna á undanförnum árum en samband hans við þá var stirt lengi vel þegar hann stýrði sænska liðinu. Börjesson vill þó meina að hann hafi átt sína sök á því.

„Sænska pressan var óvægin í hans garð. Sérstaklega undir lokin þegar mikið var um skoðanagreinar þar sem menn vildu hann burt. Hann vill helst bara tala um fótbolta en þegar þú ert með stjörnur eins og Zlatan og Freddy Ljungberg í liðinu sem allir vita að þola ekki hvor annan verður þú að geta svarað spurningum um það,“ segir Börjesson.

Eftir að hafa verið í kringum Lars með íslenska liðið segir Börjesson að þessi 67 ára gamli Svíi hafi fundið fullkominn samastað.

„Þetta er fullkomið lið fyrir hann og ég held í alvöru að Ísland geti farið ágætlega langt á EM,“ segir hann og heldur áfram:

„Lars er með svo mikla reynslu og hún í bland við þennan leikmannhóp sem gerir allt sem hann biður um er fullkomin blanda. Leikmennirnir sjá hann sem sigurvegara og hann býr til sigurviðhorf innan hópsins. Við sjáum alveg þetta viðhorf vanta í liðinu okkar í dag miðað við liðin sem Lars stýrði hérna. Þetta er áberandi. “

Eins og frægt er orðið var Lars Lagerbäck einu sinni kosinn leiðinlegasti maður Svíþjóðar. Sama hversu mikil alvara var á bak við það sýnir það á hvaða stað hann var á sínum tíma. Þrátt fyrir góðan árangur með sænska liðið kvaddi hann sína heimaþjóð að einhverju leyti í sárum en öll leiðindi eru á bak og burt, þökk sé árangri hans með íslenska liðið.

„Hann er vinsælli núna en áður. Hann hefur fengið algjöra uppreisn æru og er elskaður og dáður meira en þegar hann var sem vinsælastur hérna. Og þetta eru stór orð hjá mér því um tíma var hann gríðarlega vinsæll hérna. Það var bara þetta síðasta ár sem skildi eftir smá óbragð í munni allra,“ segir Börjesson.

„Nú er Lars búinn að gera íslenska liðið betra en það sænska. Það var sjokk að sjá FIFA-listann á sínum tíma en við erum að átta okkur á að þetta er sátt og við fögnum með Lars.“


Tengdar fréttir

Biðin er loksins á enda

Íslenska karlalandsliðið er komið áfram á stórmót í knattspyrnu í fyrsta sinn í sögunni en jafntefli gegn Kasakstan á Laugardalsvelli í gærkvöldi dugði strákunum okkar til að tryggja sér farseðilinn á EM 2016 í Frakklandi. Eftir erfiðar 90 mínútur braust út gríðarlegur fagnaður í leikslok.

Lars: Ég er ekki hetja

Landsliðsþjálfararnir Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson lýstu þakklæti sínu og stolti á blaðamannafundi eftir leikinn í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×