Kristianstad tók stig af toppliði Rosengård Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. ágúst 2015 18:08 Margrét Lára Viðarsdóttir og Elísa Viðarsdóttir hjálpuðu Kristianstad að ná í óvænt stig í kvöld. Vísir/ÓskarÓ
Íslendingaliðin Kristianstad og Rosengård gerðu í kvöld markalaust jafntefli í sænsku kvennadeildinni í fótbolta. Þetta var óvænt stig fyrir stelpurnar hennar Elísabetar Gunnarsdóttur sem eru sjö sætum neðar í töflunni en Rosengård er á toppnum. Systurnar Margrét Lára Viðarsdóttir og Elísa Viðarsdóttir spiluðu allan leikinn fyrir Kristianstad og Sif Atladóttir kom inná sem varamaður á 69. mínútu. Margrét Lára fékk gula spjaldið strax á 7. mínútu leiksins og var það eitt af þremur spjöldum liðsins en hin brasilíska Marta fékk eina spjald Rosengård í leiknum. Sara Björk Gunnarsdóttir lék allan leikinn með Rosengård en liðið frá Malmö hefur verið að gefa aðeins eftir að undanförnu. Rosengård hefur aðeins unnið einn af síðustu fjórum leikjum sínum og fyrir vikið getur Eskilstuna náð Söru Björk og félögum að stigum vinni Glódís Perla Viggósdóttir og félagar hennar í Eskilstuna leikinn sem þær eiga inni. Kristianstad var búið að tapa þremur leikjum í röð en þessi úrslit eru mikil framför frá því í fyrri leik liðanna á tímabilinu sem Rosengård vann 7-0.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Sjá meira