Unglingsstelpur taka völdin Viktoría Hermannsdóttir skrifar 29. ágúst 2015 13:00 Ásrún og unglingsstelpurnar tjá unglingsárin í dansi í sýningunni GRRRRRLLLLSSS.
Verkið fjallar um það að vera unglingsstelpa og er flutt og samið af unglingsstelpum. Ég samdi það með þeim en þær flytja það,“ segir dansarinn og danshöfundurinn Ásrún Magnúsdóttir um verkið GRRRRRLLLLSSS. Verkið verður frumsýnt í dag í Gamla bíói og er hluti af Reykjavík Dance Festival sem stendur yfir fram á sunnudag. Unglingsárin eru höfundinum hugleikin enda segir hún þetta vera spennandi aldur þar sem maður er ekki lengur barn en ekki orðinn fullorðinn, í einhvers konar millibilsástandi. „Þetta er óður til unglingsáranna,“ segir Ásrún. „Verkið er fyrir allar unglingsstelpur í dag, allar konur sem hafa verið unglingsstelpur, allar stelpur sem eiga eftir að vera unglingsstelpur. Og alla menn sem verða aldrei og hafa aldrei verið unglingsstelpur.“ Hugmyndin kviknaði hjá Ásrúnu í vetur og var hennar eigin reynsla af unglingsárunum henni einnig hugleikin, auk þess sem hún hafði verið að kenna unglingsstúlkum dans í Listdansskóla Íslands en Ásrún er útskrifaður dansari frá Listaháskóla Íslands og hefur sett upp nokkur dansverk. „Ég var líka mikið að hugsa þetta út frá því að það er búin að vera svo mikil femínísk bylgja í gangi á Íslandi,“ segir hún og vísar þar í Beauty tips-byltinguna og Freethenipple þar sem konur á öllum aldri losuðu sig við skömmina. Hún vildi vita hvort unglingsstelpur væru að velta fyrir sér byltingunum og skilaboðum þeirra. „Mig langaði að sjá hvernig er fyrir yngri stelpurnar að verða fyrir þeim. Þær eru ekki komnar úr að ofan á Twitter, eru ekki í Reykjavíkurdætrum eða eitthvað þannig. Mig langaði að vita hvað þær hefðu að segja um þetta og hvernig þær upplifðu þetta,“ segir hún. Og hvernig upplifðu þær þessa byltingu? „Þær eru að vissu leyti mjög meðvitaðar en að öðru leyti ekki. Mér fannst það jákvætt því þær finna ekki fyrir því sérstaklega að þær þurfi að berjast fyrir því að vera konur enda eru þær þarna mitt á milli, enn börn í rauninni. En þær eru samt líka baráttukonur. Í vor auglýsti Ásrún því eftir unglingsstelpum til þess að skapa dansverk með henni. Viðbrögðin voru vonum framar – um fimmtíu stelpur á aldrinum 13–16 ára komu, allar máttu vera með en einhverjar duttu úr hópnum og tuttugu standa eftir. Í sameiningu sömdu þær verkið sem þær sýna í dag. Stelpurnar eru með mismunandi bakgrunn, sumar hafa æft dans og aðrar ekki. „Sumar hafa aldrei dansað eða komið fram. Þetta er skemmtileg blanda. Það er heilmikið afrek að standa á sviði í heilan klukkutíma.“ Verkið verður sýnt tvisvar í dag, laugardag. Fyrri sýningin er klukkan 15 og sú seinni klukkan 19.
Menning Mest lesið Covidsmitaður Al Pacino var nær dauða en lífi Lífið Myndaveisla: Eliza Reid og Ásdís Spanó létu sig ekki vanta í Núllið Lífið Dolly gefur 135 milljónir vegna Helenu Lífið Með húsaflutninga á heilanum Lífið „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Lífið „Ég var heppinn. En ekki hann“ Lífið „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Lífið Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins Lífið Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til Lífið Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Lífið Fleiri fréttir „Hrátt háþróað krass, langt leitt krot“ Bjóða landsmönnum nauðbeygð til messu Allt í banönum á Brút Bríet lét sig ekki vanta á sýningaropnun Ynju Blævar Út um allar koppagrundir Alþingis: „Froðan flæðir endalaust, það er bara froða froða“ Skálda opnar: „Kannski ekki margir nógu vitlausir til að framkvæma þessa hugmynd“ Össur Geirsson er heiðurslistamaður Kópavogs 2024 Margmenni í sköpunargleði og stuði á safninu Ólafur Elíasson tekur yfir Piccadilly Circus og Times Square Opna fyrstu umboðsstofuna í eigu leikara Baráttan innra með manni eins og ljós og skuggar Bein útsending: Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Bong Joon Ho verður stafrænn heiðursgestur á RIFF Ævar Þór Benediktsson hlýtur verðlaun Guðrúnar Helgadóttur Ráðinn markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar Verk Arnhildar og félaga valið framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr Lyfjameðferð við meðvirkni: „Æ, ég væri bara til í að taka eina töflu“ „Mann- og listfjandsamleg þvæla“ Sjá meira