Fótbolti

Stelpurnar látnar byrja snemma í Meistaradeildinni

Stjarnan hefur leik í Meistaradeild Evrópu klukkan 16.00 í dag.
Stjarnan hefur leik í Meistaradeild Evrópu klukkan 16.00 í dag. Vísir/Andri Marinó
Meistaradeild kvenna hófst í dag en fyrsti leikur keppninnar er leikur bosníska félagsins Sarajevo og albanska félagsins Vllaznia. Flautað var til leiks klukkan átta að íslenskum tíma eða tíu á staðartíma.

Riðlakeppnin fer fram á nokkrum stöðum, meðal annars í Bosníu, Norður-Írlandi og Króatíu en Stjörnukonur hefja leik síðar í dag þegar þær mæta maltneska liðinu Hibernians á Kýpur.

Flautað var til leiks í fyrsta leiknum klukkan 10.00 á staðartíma í Bosníu en leikur Stjörnunnar er ekki fyrr en 16.00 á íslenskum tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×