Lífið

Fallon hæðist að Trump og ummælum hans um Kelly

Atli Ísleifsson skrifar
Jimmy Fallon í gervi Donald Trump.
Jimmy Fallon í gervi Donald Trump.
Bandaríski þáttastjórnandinn Jimmy Fallon hæddist að bandaríska auðjöfrinum og forsetaframbjóðandanum Donald Trump og ummælum hans um Megyn Kelly hjá Fox News í þætti sínum í gærkvöldi.

Trump hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir ummæli sín þar sem hann sagði Kelly, sem var meðal fundarstjóra á kappræðufundi Repúblikana á fimmtudaginn, hafa stjórnast af því að „blóð kæmi úr henni“ þegar hún beindi spurningum að Trump.

Trump hefur sagt fólk „afbrigðilegt“ sem hafi túlkað orð hans þannig að hann hafi verið meina að blæðingar Kelly hafi stjórnað spurningum hennar.

Sjá má myndbandið af Fallon að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.