Íslenski boltinn

Blikastúlkur í stuði

Vísir/stefán

Breiðablik náði fjögurra stiga forskoti í Pepsi-deild kvenna í kvöld er liðið vann sannfærandi sigur á Fylki.



Breiðablik er nú fjórum stigum á undan Stjörnunni þegar búið er að spila þrettán umferðir. Þessi lið mætast svo 21. ágúst.



Þór/KA er komið i þriðja sætið eftir sigur á KR sem er í áttunda sæti sem fyrr.



Selfoss hoppaði svo upp í fjórða sætið eftir sigur á Þrótti sem er í næstneðsta sæti deildarinnar.



Úrslit kvöldsins:



Þór/KA-KR  2-0

Sandra María Jessen 2.



Þróttur-Selfoss  0-3

- Dagný Brynjarsdóttir, Magdalena Anna Reimus, Guðmunda Brynja Óladóttir.



Breiðablik-Fylkir  3-0

Aldís Kara Lúðvíksdóttir, Rakel Hönnudóttir, Telma Hjaltalín Þrastardóttir.



Upplýsingar um markaskorara: fotbolti.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×