Fótbolti

Barcelona náði aðeins jafntefli á Nývangi

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Messi skoraði en það dugði ekki til.
Messi skoraði en það dugði ekki til. vísir/getty
Athletic Bilbao vann í kvöld spænska Ofurbikarinn eftir 1-1 jafntefli við Barcelona í seinni leik liðanna á Nývangi. Bilbao vann fyrri leikinn 4-0 og einvígið því samanlagt 5-1.

Lionel Messi kom Barcelona yfir á 43. mínútu eftir sendingu Luís Suárez en Artiz Aduriz jafnaði metin 16 mínútum fyrir leikslok. Aduriz fór mikinn í einvíginu en hann gerði þrennu í fyrri leiknum.

Tvö rauð spjöld fóru á loft í kvöld; Gerard Pique, varnarmanni Börsunga, var vikið af velli á 56. mínútu og Kike Sola, sóknarmaður Bilbao, fór sömu leið fjórum mínútum fyrir leikslok.

Þetta er í annað sinn sem Bilbao vinnur Ofurbikarinn en liðið vann hann einnig árið 1984.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×