Fótbolti

Bale skoraði gegn sínum gömlu félögum

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Gareth Bale var meðal markaskorara í 2-0 sigri Real Madrid á Tottenham í æfingarleik í dag en leikurinn var hluti af Audi Cup, alþjóðlegu móti sem fer fram á Allianz Arena í Munchen.

Cristiano Ronaldo var ekki með Real Madrid í dag en það kom ekki að sök fyrir spænska stórveldið gegn Tottenham sem stillti upp sínu sterkasta liðið.

Kólumbíski miðjumaðurinn James Rodriguez skoraði fyrsta mark leiksins um miðbik fyrri hálfleiks en Gareth Bale bætti við öðru marki Madrídar-manna þegar tíu mínútur voru til leiksloka.

Bayern Munchen mætir AC Milan í seinni leik dagsins klukkan 18:45.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×