Heimir: Vildum styrkja miðjuna í þessum leik Ingvi Þór Sæmundsson í Kaplakrika skrifar 5. ágúst 2015 22:02 Heimir Guðjónsson í leiknum í kvöld. Vísir/Andri Marinó
Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, var glaður í leikslok eftir sigur hans manna á Val í kvöld. "Við byrjuðum þetta svolítið hægt en unnum okkur vel inn í leikinn og komust sanngjarnt yfir," sagði Heimir. "Leikurinn opnaðist fyrir okkur í seinni hálfleik og þá gerðum við mistök, fórum upp með vörnina og þeir refsuðu okkur. En við sýndum karakter í seinni hálfleik og náðum að skora sigurmarkið," sagði Heimir sem var sáttur með varnarleik sinna manna. "Mér fannst við loka mjög vel á Valsmennina og mér fannst þeir ekki skapa sér mikið." Bjarni Þór Viðarsson skoraði sigurmark FH og átti mjög góðan leik. Heimir var að vonum ánægður með hans frammistöðu í kvöld. "Hann hefur verið að spila fremstur á miðjunni og við vildum styrkja miðsvæðið í þessum leik og nota Atla Guðnasonar úti á vinstri kantinum á móti Baldvini Sturlusyni sem er ekki búinn að spila mikið í sumar. "Mér fannst það ganga vel og Atli Guðna var mjög hættulegur eftir því sem leið á leikinn," sagði Heimir. Einhverjir FH-ingar báðu rangstöðu í marki Vals en Heimir sagði línuvörðurinn hefði tekið rétta ákvörðun að halda flagginu niðri. "Ég var akkúrat í línu og þetta var ekki rangstaða. Þetta var hárrétt hjá línuverðinum og við vorum bara klaufar, það var engin pressa á manninum með boltann og vörnin okkar átti að síga til baka." Með sigrinum náði FH þriggja stiga forystu á KR og sex stiga forystu á Val. "Auðvitað er fínt að við skyldum vinna Val og KR skyldi tapa. Það er gott fyrir okkur. En við þurfum að halda áfram og næst er erfiður leikur á móti ÍA," sagði Heimir að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Greint frá ósæmilegri hegðun í aðdraganda þings KKÍ Körfubolti Næstu bikarmeistarar stórgræða á árangri Víkings Fótbolti „Á meðan að pabbi er formaður mun ég ekki skipta um lið“ Körfubolti Ný átta sekúndna regla innleidd hér á landi Íslenski boltinn Heimir leitar sátta: Vill bjór og spjall með Duff og Bradley Fótbolti Þungarokkarar skemmdu meistarafána Bulls Körfubolti Borga 50 milljónir fyrir 17 ára pjakk sem fær sjö ára samning Enski boltinn Rashford og 32 ára nýliði í fyrsta landsliðshópi Tuchels Enski boltinn Gjammandi áhorfandinn biður McIlroy afsökunar Golf „Kominn tími á konu í Formúlu 1“ Formúla 1 Fleiri fréttir Ný átta sekúndna regla innleidd hér á landi Markvörður FH fer heim til Keflavíkur Lengsta undirbúningstímabilið að klárast Alex Freyr skrópaði á æfingu á Spáni Helena Ósk tryggði Valskonum sæti í undanúrslitunum Þór/KA konur áfram í undanúrslit eftir sigur í Árbænum Tveggja leikja bann fyrir glórulausa tæklingu Fyrirliði Vestra veðjaði á leiki í Bestu deildinni 55 ára Rúnar smurði hann í skeytin með bæði hægri og vinstri Valur fær manninn sem var efstur á óskalistanum Kveður Selfyssinga óvænt: „Það er synd að kveðja á þennan hátt“ Baðst afsökunar á tæklingunni í Garðabænum Skrautlegt mark, glæsimark og allt brjálað í sigri KR „Ljótasta tækling ársins komin í íslenska boltanum“ FH sækir liðsstyrk út fyrir landsteinana Trúir á Óla Kristjáns og Jesú Krist Í skýjunum með að hreppa Þórdísi Hrönn Níu mörk þegar KR vann ÍBV QPR vildi Þorra en Fram sagði nei Fylkismenn komust áfram á kostnað Íslandsmeistara Blika Valskonur með fullt hús og markatöluna 15-1 Thomsen mættur aftur í íslenska boltann Pedersen með tvö og Valsmenn í undanúrslit Auðun tekur við Þrótti Vogum „Fjölskyldan spurði hvort ég gæti ekki fundið hlýrra land“ Sveinn Margeir mögulega ekkert með Víkingum í sumar Víðir með Vestmannaeyingum í sumar Daði Berg frá Víkingi til Vestra Víkingar skipta um gír Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja Sjá meira