Enski boltinn

United getur dregist á móti þessum liðum í Meistaradeildardrættinum í dag

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Vísir/Getty
Enska úrvalsdeildarliðið Manchester United verður í pottinum í dag þegar dregið verður í umspilið um síðustu sætin inn í Meistaradeildina á þessu tímabili.

Drátturinn fer fram í höfuðstöðvum UEFA, Knattspyrnusambands Evrópu, í Nyon í Sviss og hefst hann klukkan 10.00 að íslenskum tíma.

Umspilinu er skipt um þannig að meistaralið frá löndunum mætast í fimm leikjum en í hinum fimm mætast síðan lið sem komust í umspil Meistaradeildarinnar án þess að vinna titilinn í sínu landi. Báðir hóparnir eru síðan styrkleikaraðaðir þannig að hvert lið getur aðeins mætt einu af fimm liðum.

Manchester United lendir á móti einu eftirtalda liða: Club Brugge, CSKA Moskva, Lazio, Mónakó eða Rapid Vín.

Manchester United tekur nú aftur þátt í Meistaradeildinni eftir eins árs fjarveru en liðið tryggði sér sætið með því að ná fjórða sætinu í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.

Tvö Íslendingalið eru líka í pottinum, sænska liðið Malmö FF (Kári Árnason) og svissneska félagið Basel (Birkir Bjarnason).

Þeir Kári og Birkir gætu mæst en Malmö mætir einu af eftirtöldum liðum: Basel, Celtic, APOEL, BATE Borisov eða Dinamo Zagreb.

Basel mætir hinsvegar einu eftirtalda liða: Maccabi Tel Aviv, Partizan, Malmö FF, Skenderbeu Korce eða Astana.

Barcelona, Bayern München, Chelsea, Benfica, Paris Saint-Germain, Juventus, Zenit, PSV Eindhoven, Real Madrid, Atlético Madrid, FC Porto, Arsenal, Manchester City, Sevilla, Olympique Lyonnais, Dynamo Kyiv, Olympiacos, Galatasaray, AS Roma, Borussia Mönchengladbach, Wolfsburg og KAA Gent fóru öll beint inn í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×