Fótbolti

Neymar með hettusótt

Anton Ingi Leifsson skrifar
Neymar er með hettusótt og gæti misst af einhverjum leikjum sökum þess.
Neymar er með hettusótt og gæti misst af einhverjum leikjum sökum þess. vísir/getty
Neymar, framherji Barcelona, hefur verið greindur með hettusótt og gæti misst af byrjun tímabilsins á Spáni vegna veikindana.

Brasilíski landsliðsmaðurinn er með hettusótt og mun missa af leikjunum gegn Sevilla þann fjórtánda og sautjánda ágúst, en þar mætast sigurvegarar Meistaradeildarinnar og Evrópudeildarinnar.

Fyrsti leikur í deildinni hjá Barelona er svo þann 23. ágúst gegn Athletic Bilbao, en Brasilíumaðurinn gæti átt í hættu að missa af honum vegna veikindana.

Neymar skoraði 39 mörk mörk á síðustu leiktíð, en Barcelona vann þrennuna; deildina, spænska bikarinn og Meistaradeildina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×